Jónsi og Alex sýna í Arkansas 12. júlí 2007 08:45 Jónsi og Alex halda til Arkansas í lok mánaðar og Melbourne í október með sýninguna Riceboy Sleeps. MYND/GVA
Riceboy Sleeps, sameiginlegt verkefni Jóns Þórs Birgissonar, sem flestir þekkja sem Jónsa í Sigur rós, og Alex Somers, kærasta hans, heldur utan á næstunni. Jónsi og Alex halda sýningu í Arkansas um næstu mánaðamót og í Melbourne í Ástralíu í október. Jónsi og Alex gáfu út myndabók með sama nafni í nóvember síðastliðnum og settu á sama tíma upp sýningu með myndum úr bókinni og vídeóverkum hér á landi. „Þetta er reyndar ekki sama sýning og við vorum með hérna heima, við erum búnir að vinna heilmikið í þessu,“ sagði Jónsi. Sýningarnar munu þó eiga eitthvað sameiginlegt. „Þegar við sýndum hérna heima vorum við búnir að finna gamla, ónýta gluggaramma sem við sýndum myndverkin í. Galleríeigandinn í Arkansas er búinn að finna fyrir okkur svipaða glugga úti, svo við gerum verkin hérna heima og setjum þau svo upp í gluggunum,“ útskýrði Jónsi. Þeir verða líka með vídeóverk og einhverja tónlist, að sögn Jónsa. Myndabókin Riceboy Sleeps verður jafnframt með í för, en fyrsta upplagið er nú uppselt og annað upplag í prentun. „Fyrstu þúsund eintökin voru númeruð, og þau eru búin. Nú verður þetta gert í stærra og ónúmeruðu upplagi, þannig að þetta verður miklu ódýrara líka,“ sagði Jónsi. „Við tökum einhver eintök með út, en við erum líka að vinna í því að fá einhvern dreifingarsamning, úti um allan heim. Það hefst vonandi einhvern tíma,“ sagði hann.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira