Einar Ágúst í stúdíói í Danmörku 13. júlí 2007 08:30 Einar Ágúst situr hér í Lundgaard-stúdíóinu þar sem hann syngur og spilar lag um son sinn Ásmund Goða inn á plötuna.
Einar Ágúst Víðisson er staddur í Lundgaard-stúdíóinu á Jótlandi þessa vikuna þar sem hann er við upptökur á fyrstu sólóplötunni sinni ásamt hljóðfæraleikurunum úr X-factor. Einar reiknar með að platan verði komin í verslanir í október. Lítið sást til Einars um nokkurra ára skeið þar til hann steig á svið með gömlu félögum sínum í Skítamóral í lok október á Nasa. Frá áramótum hefur hann spilað og sungið víða ásamt félaga sínum, Júlíusi Jóhannssyni, sem er með honum í Danmörku. „Við byrjuðum upptökur á mánudagsmorguninn og reynum að spila þetta svolítið „live“,“ segir Einar Ágúst, sem er með góðan hóp tónlistarmanna með sér í stúdíóinu. Hann segir plötuna verða með ellefu lögum sem nokkur eru eftir hann sjálfan. „Svo eru þrjú erlend lög með íslenskum textum og endurgerð af einu Sálarlagi, auk þeirra tveggja sem Vignir Snær lagði til,“ segir Einar og bætir við: „Ég myndi segja að þetta væri lífræn tónlist þar sem kassagítarinn kemur mikið við sögu og við reynum að hafa lifandi hljóm á þessu. Ég er að byrja að finna þá stefnu sem mig hefur alltaf langað til að hafa tónlistina mína í enda eru sum laganna minna nokkurra ára gömul og hafa beðið eftir því að þetta verkefni yrði að veruleika.“ Einar Ágúst segir Júlíus, félaga sinn, hafa lagt það til að farið yrði í gerð plötunnar, sem fyrst var hugsuð sem „coverplata“. „Síðan þróaðist þetta þegar vinir mínir buðust til að hjálpa mér að komast á lappirnar aftur,“ segir Einar Ágúst sem er á góðu róli í dag.
Mest lesið Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Lífið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið Terry Reid látinn Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum Menning Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira