Tónlist

Endurnærðir Papar snúa aftur

Papar eru mættir aftur hressari en nokkru sinni fyrr eftir hálfs árs pásu.
Papar eru mættir aftur hressari en nokkru sinni fyrr eftir hálfs árs pásu.

Paparnir ætla að dusta rykið af hljóðfærunum eftir gott frí og spila á nokkrum vel völdum stöðum frá 24. ágúst til 19. október. Þeir hafa ekkert komið fram síðan 18. apríl og eru því orðnir verulega endurnærðir.

„Við erum að koma úr hálfs árs pásu. Við sögðum reyndar engum að við værum að fara í pásu og fólk var farið að spyrja ansi mikið um okkur,“ segir Matthías Matthíasson, söngvari og gítarleikari Papanna. „Við erum búnir að keyra á fullu í sjö ár og spila hátt í fimm hundruð gigg. Við vorum orðnir svo þreyttir hver á öðrum að við urðum að taka okkur pásu,“ segir hann og hlær.

Paparnir hafa undanfarið verið að leggja lokahönd á DVD-tónleikadisk sem er sjálfstætt framhald tvöföldu plötunnar Papar á balli, sem var gefin út í fyrra í tilefni af tuttugu ára starfsafmæli sveitarinnar. Á nýja disknum verða m.a. viðtöl við gamla meðlimi sveitarinnar auk viðtala við gamla og nýja aðdáendur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.