Söguslóðir DV 9. febrúar 2007 15:30 Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri DV, leiðir gönguna Söguslóðir DV
Nýtt útgáfufélag DV, Dagblaðið-Vísir ehf., efnir til göngu um söguslóðir DV á morgun, laugardaginn 10. febrúar. Hefst gangan klukkan 11:00 við Síðumúla 12 í Reykjavík, en langferðabifreið verður til staðar þar sem hluti leiðarinnar verður ekinn. Gengið verður undir leiðsögn Jónasar Kristjánssonar, fyrrverandi ritstjóra DV. Jónas Kristjánsson var ritstjóri Vísis á árunum 1966 til 1975 og Dagblaðsins frá 1975 til 1981. Hann tók síðar við sameiginlegu blaði Dagblaðsins-Vísis árið 1981 sem ritstjóri, ásamt Ellerti B. Schram, en Jónas gjörþekkir sögu blaðsins. Í göngunni verður saga DV rakin og helstu sögustaðir heimsóttir. Auk viðkomu í Síðumúla verður komið við í Þverholti og Skaftahlíð. Ferðinni lýkur síðan í Brautarholti 26, þar sem boðið verður upp á hressingu. Gangan er opin öllum og ekki þarf að taka frá sæti í ferðina. Því er þó beint til gesta að mæta tímanlega.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira