Frosið vatn á Mars 16. mars 2007 19:10
Evrópskir vísindamenn hafa fundið heilmikið jökulsvæði á suðurpóli Mars. Ef það bráðnaði er talið að vatn myndi þekja stóran hluta plánetunnar. Það er geimfar á braut um Mars sem hefur tekið myndir af ísbreiðunum. Það eru vísindamenn á vegum Evrópusku geimferðastofnunarinnar sem kynntu niðurstöðurnar og birtu í dag. Rannsóknin var gerð með tækni frá Bandarísku geimferðastofnuninni, NASA, og ítölskum aðilum. John Murray, vísindamaður sem vinnur að verkefninu segir fyrirbærið aðeins um 5 milljón ára gamalt. Það þyki kannski mjög gamalt en í jarðfræðilegum skilningi sé það mjög ungt. Svo virðist sem vatnið hafi komið upp sem flóð úr iðrum Mars í stórkostlegum náttúruhamförum. Það hafi farið um mjög langan veg, nokkur hundruð kílómetra, og þeki svæði sem sé á stærð við Norðursjó. Þetta sé því stórt svæði, um 50 metrar að dýpt og því álíka stórt og djúpt og Norðursjórinn Þar sem flóðið hafi komið úr iðrum Mars bendir sumt til þess að undir yfirborði Mars sé raki og hiti. Vitað sé að slíkt hafi gerst áður á Mars. Því sé það áhugavert að slíkt gerist enn því á þessum stöðum gæti líf hugsanlega þróast. Murray vill ekki segja að það hafi gerst en hafi það gerst á Mars væri það á þessum hlýju og röku stöðum rétt undir yfirborðinu. Því gæti fundist merki um líf í þessum ísbreiðum. Rannsóknir Evrópsku geimferðastofnunarinnar á Mars halda áfram enda um viðamikið verkefni að ræða. Mælingar hófust snemma árs 2004 og ekki áætlað að þeim ljúki fyrr en í fyrsta lagi í maí 2009.
Erlent Fréttir Vísindi Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira