Birgir Leifur upp um 52 sæti á peningalistanum 7. maí 2007 01:15
Spánverjinn Gonzalo Fernandez-Castano sigraði á Opna ítalska mótinu í dag eftir bráðabana við Markus Brier frá Austurríki. Þeir léku báðir þrjá hringi á 16 höggum undir pari. Þeir léku 18. brautina tvisvar og í síðara skiptið hafði Castano betur og fékk um 25 milljónir króna í verðlaunafé fyrir fyrsta sætið. Brier fór heim með 16 milljónir. Birgir Leifur Hafþórsson hafnaði í 11. sæti, á 13 höggum undir pari, sem er besti árangur hans til þess á Evrópumótaröðinni. Hann fékk 2,5 milljónir króna í sinn hlut, sem er hæsti tékki sem hann hefur tekið á móti fyrir árangur í golfmóti. Hann fór upp um 52 sæti á peningalistanum og er nú kominn í 163. sæti, en var í 215. sæti fyrir mótið. Til að halda keppnisrétti sínum á mótaröðinni á næsta ári þarf hann að vera á meðal 115 efstu á listanum í lok keppnistímabilsins. Birgir Leifur hélt strax eftir mótið í Mílanó heim til Lúxemborgar þar sem hann hitti fjölskyldu sína, en næsta mót fer fram á Spáni og hefst á fimmtudag.Frétt af Kylfingur.is
Golf Mest lesið Albert svaraði eftir að hafa verið sakaður um hugleysi Fótbolti Úlfarnir lítil fyrirstaða fyrir Rauðu djöflana Enski boltinn Salah ekki með Liverpool til Ítalíu Enski boltinn Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Íslenski boltinn „Hortugasta klapp sem ég hef séð“ Körfubolti „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Enski boltinn Dæmd í fjögurra ára fangelsi Fótbolti „Ég myndi bróka hann inn í klefa“ Körfubolti Búist við að Salah verði hent úr hóp Enski boltinn Slot: „Hef ekki hugmynd hvort Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool“ Enski boltinn Fleiri fréttir Bananahýði gerði Rory McIlroy erfitt fyrir Dáður en umdeildur kylfingur látinn Gríðarleg fjölgun kylfinga: „Aðstaðan sprungin í höfuðborginni“ Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Sjá meira