Tónlist

Pavarotti laus af sjúkrahúsi

Stórtenórinn Luciano Pavarotti hefur fengið leyfi lækna til að yfirgefa sjúkrahúsið á Norður-Ítalíu sem hann var lagður inná með háan hita og lungnabólgu á dögunum.

Samkvæmt talsmanni Pavarotti er söngvarinn sæll og glaður og hlakkar til að halda aftur til starfa sinna sem söngkennari.

Líklega yfirgefur hann sjúkrahúsið á allra næstu dögum.

Pavarotti stefnir á að halda í hljóðver í næsta mánuði og taka upp hljómskífu.

Pavarotti greindist með krabbamein í briskirtli í júlí á síðasta ári og þurfti í kjölfarið að fresta fyrirhugaðri kveðjutónleikaferð sinni. Hann hefur ekki sést opinberlega síðan.


Tengdar fréttir

Pavarotti á spítala

Ítalski tenórinn Luciano Pavarotti var fluttur á spítala á Norður-Ítalíu fyrr í vikunni með lungnabólgu. Nýjustu fregnir herma að ástand hans sé stöðugt og von sé á að hann geti farið heim á næstu dögum.Pavarotti greindist með krabbamein í briskirtli í júlí á síðasta ári og þurfti í kjölfarið að fresta fyrirhugaðri kveðjutónleikaferð sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.