Ólöf opnar sýningu 11. september 2008 03:00 Málverk eftir Ólöfu Björgu Björnsdóttur.
Sýning á verkum myndlistarkonunnar Ólafar Bjargar Björnsdóttur verður opnuð í dag kl. 17 í Artóteki, sem er á jarðhæð aðalsafns Borgarbókasafns Reykjavíkur, Tryggvagötu 15. Nefnist sýningin „Áttavitinn sjálfsnánd og mild mýkingarefni". Ólöf Björg útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2001 með málun sem aðalgrein, og vorið 2007 lauk hún kennaranámi frá sama skóla. Ólöf Björg hefur verið virk í myndlistarlífi landsins frá útskrift; hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga og uppákomum ýmiss konar. Hún átti meðal annars verk á Sequences-hátíðinni árið 2007 og á afmælissýningu Hafnarfjarðar sem sett var upp í Hafnarborg nú fyrr á árinu. Málverk Ólafar Bjargar eru í senn kaótísk og nákvæm og fá litir að njóta sín til fulls. Hún hefur þó ekki einskorðað listsköpun sína við málverkið heldur hefur hún einnig unnið með aðra miðla, til að mynda innsetningar, og má í því samhengi nefna að á sýningunni í Artóteki má einmitt sjá bæði málverk og innsetningu. Sýningin stendur til 19. október.- vþ
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Nicole er fyrir norðan Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira