Sólargeisli frá honum KK 23. október 2008 06:00 Melódikka, kassagítar og þvottabretti KK skemmti gestum sínum ásamt snillingunum Jóni Ólafssyni og Ásgeiri Óskarssyni. MYND/valli
Nýjasta plata hins ástsæla tónlistarmanns KK – Svona eru menn – er komin út. Þjófstartað var á Kaffi Rosenberg á mánudag. Til útgáfuteitis KK var ýmsum vinum og velunnurum, ásamt þeim sem komu að gerð plötunnar, boðið. KK tróð upp ásamt Jóni Ólafssyni og Ásgeiri Óskarssyni. Viðstaddir fengu forsmekkinn af efni plötunnar sem er meðal annars sérstök að því leytinu til að Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi gefur út plötuna auk þess sem hann myndskreytir bækling sem fylgir disknum með ljósmyndum sínum. Jóhann Páll, sem lét sig gerð plötunnar varða á framleiðslustigi, er að vonum ánægður með sinn mann: „Svona eru menn er að mínu viti einlægasta og hreinræktaðasta plata KK til þessa. Hann stendur og fellur algjörlega með sjálfum sér á plötunni og tekst það einstaklega vel. Yrkisefnin spilla ekki á erfiðum tímum. Ég er sannfærður um að diskurinn verður sannkallaður sólageisli sem lýsir upp myrkvaðar sálir Íslendinga nú um stundir.“ KK heldur útgáfutónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld til að fagna plötunni. Tónleikarnir hefjast klukkan 21. jakob@frettabladid.is umboðsmaðurinn og markaðsstjórinn Palli Papi, til hægri, er umboðsmaður KK (sem og reyndar Bubba) og hann mætti að sjálfsögðu ásamt Heiðari Inga Svanssyni, markaðsstjóra Forlagsins.
Mest lesið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Lífið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Lífið Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Bay segir skilið við Smith Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira