Þjóðleikhúsið opið 6. september 2008 05:00 Skoppa og Skrítla Leika á als oddi í Þjóðleikhúsinu í dag.
Boðið verður upp á opið hús í Þjóðleikhúsinu í dag á milli kl. 13 og 16. Þar verður margt skemmtilegt um að vera; Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleikhússtjóri mun taka á móti gestum í sínu fínasta leikhúspússi, ræningjarnir úr Kardemommubænum ætla að grilla á tröppum Þjóðleikhússins og starfsfólk og leikarar hússins verða á ferð og flugi um alla bygginguna, uppáklædd í tilefni dagsins, leitandi að ísbirni sem ku hafa tekið sér bólfestu í húsinu. Leikhúsunnendur sem vilja tryggja sér varanlegt sæti úr Þjóðleikhúsinu geta einnig tryggt sér stól í þessari ferð því örfá „sæti“ úr gamla salnum verða til sölu á opna húsinu. Stólarnir eru með hinu sígilda Þjóðleikhúsáklæði og í fínu standi, en ósamsettir. Kynnisferðir baksviðs verða tímasettar og verður farið í litlum hópum um húsið. Síðast en ekki síst munu Skoppa og Skrítla, Einar Áskell og Maddamamma og Putti litli úr Skilaboðaskjóðunni gleðja yngstu gestina. - vþ
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira