Sorgardagur fyrir Stabæk 17. desember 2008 19:06 Veigar Páll Mynd/Scanpix
Franska knattspyrnufélagið Nancy ætlaði upphaflega að fá Veigar Pál Gunnarsson fyrir ekki neitt. Þetta segir yfirmaður íþróttamála hjá Stabæk í viðtali við Stöð2. Eins og greint var frá í dag hefur Stabæk samþykkt tilboð frá Nancy í Veigar Pál. Kaupverðið fæst ekki uppgefið en fréttamaður hjá TV2 í Noregi sem Stöð2 hafði samband við í dag, sagði óstaðfestar heimildir sínar herma að það nemi 15 og hálfri milljón norskra króna. Það gerir 263 milljónir íslenskra króna á gengi dagsins. Yfirmaður íþróttamála hjá Stabæk er Lars Bohinen, fyrrverandi leikmaður á Englandi með Derby, Blackburn og Notthingam Forest. Hann segir mikla eftirsjá af Veigari. „Þetta er sorgardagur fyrir Stabæk, hér sjá menn mjög eftir Veigari enda er hann leikmaður sem átti stóran þátt í meistaratitlinum. Hann er dáður hérna fyrir öll mörkin sem hann hefur skorað svo ekki sé minnst á allar stoðsendingarnar hans." Sagði Bohinen meðal annars. Aðspurður um hversu ákafir menn hjá Nancy hafi verið að krækja í Veigar sagði Bohinen; „Þeir héldu nú fyrst að þeir gætu fengið hann frítt og í raun erum við ekki sáttir hérna hjá Stabæk hversu lítið við fáum fyrir Veigar miðað við það sem við metum hann á. En í ljósi efnahagsástandsins í heiminum þá er upphæðin sem við fáum fyrir hann eftir allt sanngjörn." Fréttastofa náði ekki í Veigar í dag en hann er í jólafríi í Bandaríkjunum sem einhver truflun verður nú á. Bohinen reiknar með að Veigar þurfi að fljúga til Frakklands á morgun til að gangast undir læknisskoðun og ganga frá persónulegum samningi við Nancy.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real Fótbolti Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Freyr fær fríspil á meðan hörð átök geysa utan vallar hjá Brann Leikmenn Arsenal völdu Rice sem fyrirliða Infantino fullviss um að Íran muni spila á HM Átti Camavinga skilið spjald? „Ekki eins og hann taki boltann og negli honum í burtu“ Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real „Ég get ekki breytt þessu“ Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Þú ert farinn að verða þybbinn“ „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Bæjarar áfram eftir tvö mörk í blálokin Arsenal tókst ekki að skora en komst samt áfram í undanúrslit „Þetta var skandall“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta „Framtíð fótboltans er í góðum málum með þennan gutta“ „Þeir geta tekið þetta með sér“ Oliver keyptur til KA Gæti misst fjóra leikmenn í bann og vill breyta reglunum Real Madrid goðsögn fallin frá Ekitike sleit hásin „Þessu einvígi var stolið frá okkur“ Sjáðu Dembélé skjóta Liverpool úr leik og markið mikilvæga hjá Atlético Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Gylfi eftirlitsmaður hjá Arsenal í Meistaradeildinni „Svo margir dómar hafa fallið gegn okkur“ Atlético Madrid í undanúrslit eftir mikla dramatík PSG sótti sigur á Anfield og sló Liverpool út Isak byrjar hjá Liverpool en Salah er aftur á bekknum Sjá meira