Listahátíð hefst í næstu viku 9. maí 2008 20:00 Hljómsveitin Amiina verður kemur fram á hátíðinni
Þann 15. maí hefst þriggja vikna dagskrá Listahátíðar í Reykjavík með fjölbreyttum tónlistar- og sviðlistaviðburðum og miklum fjölda myndlistarsýninga. Viðburðirnir eiga sér stað í sýningarsölum, listasöfnum, galleríum og á götum úti og teygja einnig anga sína út á land. Í ár verður aðaláhersla hátíðarinnar á myndlist, en það var fyrst gert árið 2005 og þótti takast mjög vel. Myndlistin er enn umfangsmeiri í ár og nú eru íslenskir sýningarstjórar í aðalhlutverki. Hátt í 200 íslenskir og erlendir myndlistarmenn taka þátt í yfir 20 sýningum en stærsta verkefnið, Tilraunamaraþon í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi er jafnframt umfangsmesta myndlistarverkefni sem hér hefur farið fram. Dagskrá hátíðarinnar í ár prýðir fjöldi annarra listamanna sem allir skara fram úr hver í sinni grein, jafnt hér heima sem erlendis. Miðar á þá viðburði eru seldir á vef listahátíðar, www.artfest.is. Meðal tónlistarviðburða á Listahátíð má nefna tónleika stórmeistara djassins, hins nífalda grammyverðlaunahafa Wayne Shorter og einsöngstónleika hinnar glæsilegu bandarísku söngdívu Denyce Graves sem báðir verða í Háskólabíói og stórtónleika með Amiinu, Kippa og vinum í Undralandi.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira