Gallery verður Projects 16. október 2008 07:00 Myndbandalist Hluti úr verki eftir Tamy Ben-Tor.
Tekið hefur til starfa sýningarrýmið 101 Projects. Eins og nafnið gefur til kynna er 101 Project á vegum 101 Gallery og byggir á grunni þess, enda rekið í sama húsnæði. Í sýningarrýminu 101 Projects verður áfram boðið upp á samtímamyndlist, með aukinni áherslu á sýningar framsækinna, alþjóðlegra myndlistarmanna. Listrænn stjórnandi 101 Projects er Birta Guðjónsdóttir. Heiðurinn af fyrstu sýningunni í hinu endurskírða sýningarrými fær ísraelska myndlistakonan Tamy Ben-Tor. Hún hefur að mestu starfað á sviði myndbandsverka, en er jafnframt þekkt fyrir gjörninga sína, sem hún hefur flutt við mikil fagnaðarlæti í leikhúsum, á gjörningahátíðum og næturklúbbum. Hún kemur sjálf fram í verkum sínum, bregður sér í ýmis gervi og leikur karaktera, sem hún byggir á þekktum erkitýpum. Verk hennar eru full af gálgahúmor og beittri gagnrýni Ben-Tor á hennar eigin persónulegu aðstæður. Á sýningunni í 101 Projects, sem opnuð verður í kvöld kl. 18, verða sýnd ný myndbandsverk. Þess ber að geta að sýningin er hluti af listahátíðinni Sequences sem staðið hefur yfir síðustu daga við mikinn fögnuð íslenskra listunnenda. Sýningin stendur svo til 16. nóvember. -vþ
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira