Forboðnu dyrnar Hólmfríður Helga Sigurðardóttir skrifar 10. ágúst 2010 06:00 Eitt af því sem ég hafði alltaf hlakkað til að upplifa þegar að því kæmi að ég gengi með barn var þessi víðfræga óstjórnlega löngun í eitthvað óvenjulegt. Vinkona mín þurfti að beita sig hörðu til þess að ráðast ekki á næsta steypuvegg og sleikja hann af áfergju þegar hún var ófrísk. Önnur, sem alla jafna er grænmetisæta, borðar kjötbollur í öll mál á sínum meðgöngum, jafnvel í morgunmat, og verður rasandi í skapinu ef eiginmaðurinn dirfist að bera eitthvað annað á borð. Sú þriðja fyllist svo óstjórnlegri frygð að hún verður að gæta þess vel að rekast ekki óvart í brjóst sín, til að æsa sjálfa sig ekki upp, svo maðurinn hennar fái í það minnsta frið frá ástarleikjum þangað til fer að rökkva. Það skal tekið fram að ég er langt gengin með mitt annað barn. Myndin sem fylgir þessum pistli ber þess reyndar ekki merki, sem skrifast á framtaksleysi í bland við andúð mína á myndavélalinsum. Lesendur með ofgnótt frítíma geta dundað sér við að teikna á mig fimm kílóa bumbu, bætt í það minnsta einu kílói á afturendann, teiknað á mig vænan barm og myndarlega bingóvöðva. Restinni af þyngdaraukningu meðgöngu minnar má svo dreifa jafnt yfir andlitið (hafið þið tekið eftir því hvað óléttar konur virðast oft vera með stóran haus?). Þetta var útúrdúr. Aftur að geðveikislegum löngunum. Það voru sem sagt töluverð vonbrigði, þegar ég varð fyrst ófrísk, að mig langaði ekki í neitt undarlegt. Frosin vínber voru það flippaðasta sem ég gat nefnt þegar hinar bollurnar reittu af sér meðgönguþráhyggjusögurnar, hverja annarri sjúkari. Sama hefur verið að segja með þessa meðgöngu. Að þessari sístækkandi vömb undanskilinni hef ég verið frekar eðlileg. Þar til ég opnaði dverggeymsluna frammi á gangi hjá mér um daginn. Mætti mér þá ilmur, svo himneskur að hann lyfti mér upp í hæstu hæðir, mig fór að dreyma dagdrauma, sá liti sem ég vissi ekki að væru til og fann framandi kenndir. Ég skellti aftur hurðinni að geymslunni, með dúndrandi hjartslátt, og vissi að ég hafði fundið forboðnu hurð minnar meðgöngu. Eitthvað sem lætur mér líða svona vel getur ekki verið hollt. Svo mikið lærði ég í fíkniefnafræðslunni í barnaskóla. Síðan leitar hugur minn stöðugt út í geymslu. Óvenjulega oft þarf ég að bregða mér þangað. Sækja mér nagla, hreinsiefni, málningardollu, spýtukubb eða sandpappír. Þetta þykir manni mínum grunsamlegt. Sjálf skrifa ég geymsluheimsóknirnar á hreiðurgerðina. Annan undarlegan og illviðráðanlegan fylgikvilla meðgöngunnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hólmfríður Helga Sigurðardóttir Mest lesið Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Reykjavík er frjáls Björg Magnúsdóttir Skoðun Tafla á villigötum Gauti Eggertsson Skoðun Yfir 2.000 til 3000 milljarða tap á 15 - 17 árum – og enginn ber ábyrgð Sigurður Sigurðsson Skoðun Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun Sumarhátíðir, rándýrir vextir og óopnað umslag Pétur Marteinsson Skoðun Orð skipta máli Birgitta Þorsteinsdóttir Skoðun Aðlögun að hverju? Staða Íslands í aðildarferli Evrópusambandsins Ásta Guðrún Helgadóttir Skoðun Það sem mamma og pabbi kenndu mér Gréta María Grétarsdóttir Skoðun Innan ESB „mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi“ Óli Rúnar Ástþórsson Skoðun
Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun
Að kveðja verðtrygginguna: Stærsta kjarabót sem íslensk heimili geta fengið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Hver þorir næst? Knútur Emil Jónasson,Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Hermann Ingi Gunnarsson,Unnur Brá Konráðsdóttir,Jóhanna Hreinsdóttir,Ásta Stefánsdóttir,Aldís Hafsteinsdóttir,Bergþór Bjarnason,Haraldur Þór Jónsson Skoðun