Kínverjar kanna Drekasvæðið Kristján Már Unnarsson skrifar 29. júní 2010 18:26
Kínverska ríkisolíufélagið Sinopec, sem hefur víðtæka reynslu af olíuborun á miklu hafdýpi, hefur ákveðið að gera forkönnun á fyrirliggjandi gögnum um Drekasvæðið. Sinopec er eitt stærsta olíufélag heims og er meðal annars í samstarfi við Geysi Green Energy um uppbyggingu hitaveitna í Kína. Í nýlokinni heimsókn Katrínar Júlíusdóttur iðnaðarráðherra til Kína kom fram mikill áhugi Kínverja á auknu samstarfi við Íslendinga, ekki aðeins á sviði jarðhitanýtingar heldur einnig olíuleit. Á fundi Katrínar með varaforseta kínverska olíurisans var rætt um rannsóknir tengdar mögulegri olíuvinnslu á Drekasvæðinu. Í frétt frá iðnaðarráðuneyti kemur fram að Kínverjarnir hafi vísað til langrar reynslu Sinopec af jarðfræðirannsóknum og borunum á miklu dýpi í tengslum við olíuiðnað og að félagið myndi gera forkönnun á fyrirliggjandi gögnum um Drekasvæðið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Kínverjar sýna olíuleit þar áhuga því í aðdraganda Drekaútboðsins á síðasta ári sótti kínverska sendiráðið gögn um útboðið, að sögn Kristins Einarssonar hjá Orkustofnun. Iðnaðarráðherra hefur ákveðið að næsta olíuleitarútboð Íslendinga verði á næsta ári.
Innlent Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Bein útsending: Samtal um framtíðina Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira