Skagamenn töpuðu fyrstu stigunum - HK eitt á botninum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júní 2011 22:10 Hjörtur Júlíus Hjartarson skorar jöfnunarmark Skagamanna í kvöld. Mynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson
Víkingar úr Ólafsvík urðu fyrstir til þess að taka stig af Skagamönnum í 1. deild karla í fótbolta en 4. umferðinni lauk með fjórum leikjum í kvöld. Hjörtur Júlíus Hjartarson tryggði ÍA-liðinu 1-1 jafntefli á móti Víkingi með sínu þriðja marki í sumar. ÍR-ingar rifu sig upp eftir tvö töp í röð og unnu 3-2 sigur á Fjölnismönnum í Grafarvoginum þar sem fjögur markanna komu í fyrri hálfleiknum. Fjölnir er þar með búið að tapa tveimur leikjum í röð og fá á sig sex mörk í þeim. HK-ingar eru nú einir á botninum með eitt stig af tólf mögulegum eftir 1-2 tap fyrir Þrótti á heimavelli. Þrír af fyrstu fjórum leikjum HK hafa verið í Kópavoginum en þeir hafa tapað þeim öllum. Leiknismenn þurfa að bíða enn eftir fyrst sigri sumarsins eftir 1-1 jafntefli á heimavelli á móti Selfossi. Þetta var þriðja jafntefli Leiknis í fjórum leikjum en það gengur ekki mikið betur hjá Selfyssingum að landa sigrinum enda aðeins búnir að vinna einn af fyrstu fjórum leikjunum sínum. Úrslit og markaskorarar í 1. deild karla í dag:Grótta-BÍ/Bolungarvík 1-0 1-0 Viggó Kristjánsson (75.)KA-Haukar 0-2 0-1 Hilmar Rafn Emilsson (13.), 0-2 Hilmar Trausti Arnarsson, víti (20.)HK-Þróttur R. 1-2 0-1 Sveinbjörn Jónasson (14.), 0-2, Sveinbjörn Jónasson, víti (57.), 1-2 Samúel Arnar Kjartansson (86.)Fjölnir-ÍR 2-3 0-1 Jón Gísli Ström (1.),. 0-2 Árni Freyr Guðnason (5.), 1-2 Styrmir Árnason (17.), 1-3 Árni Freyr Guðnason (36.), 2-3 Ómar Hákonarson (90.)Leiknir R.-Selfoss 1-1 1-0 Fannar Þór Arnarsson , 1-1 Viðar Örn Kjartansson.ÍA-Víkingur Ó. 1-1 0-1 Edin Beslija (60.), 1-1 Hjörtur Júlíus Hjartarson (69.)Upplýsingar um markaskorara eru fengnar af vefsíðunni fótbolti.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Sjá meira