Leiðandi hönd í gegnum ferlið 19. október 2011 09:00 Frímann Andrésson og Hálfdán Hálfdánarson hjá Útfararþjónustu Hafnarfjarðar hafa langa reynslu af því að umgangast fólk á viðkvæmum stundum í lífi þess. MYND/ANTON FjölSmíð, líkkistuvinnustofa Hálfdáns, framleiðir meðal annars kistur frá grunni.
Starfsfólk Útfararþjónustu Hafnarfjarðar vinnur náið saman fyrir aðstandendur látinna í húsnæði að Stapahrauni 5. Á skrifstofu Útfararþjónustunnar er tekið á móti aðstandendum en í sama húsnæði er líkkistuvinnustofa FjölSmíð sem Hálfdán stofnaði árið 1995. Þar er meðal annars hægt að fá kistur sem framleiddar eru frá grunni á verkstæðinu eða fengnar frá útlöndum. Partur af starf-seminni er saumastofa á efri hæðinni þar sem Ólöf, eiginkona Hálfdáns, saumar meðal annars fóður í kisturnar, rúmföt og líkföt. „Aðstaða okkar í Hafnarfirði er góð til þess að taka á móti aðstandendum en einnig komum við heim til fólks sé þess óskað," segir Frímann. „Við förum í gegnum og aðstoðum við allt skipulag og sami starfsmaðurinn fylgir fólki í gegnum allt ferlið og því sem þarf að huga að fyrir kistulagningu og útför. Þótt við höfum mest verið í því að aðstoða Hafnfirðinga er þjónustan opin öllum landsmönnum." Að mörgu er að huga fyrir aðstandendur þegar náinn ættingi fellur frá. Hálfdán segir útfararþjónustu þeirra geta aðstoðað fólk sem þarf að halda kostnaði niðri við að finna hagkvæmustu leiðina og þá sé einnig hægt að fara algerlega í hina áttina, þar sem verðflokkarnir séu hærri. „Það er flestum mjög erfitt að ganga í gegnum það að kveðja náinn ættingja eða vin og við höfum langa reynslu af umsjón útfara og því að umgangast fólk á viðkvæmum stundum í lífi þess. Við fylgjum fólki allan tímann og aðstoðum við það sem þarf að sinna," segir Frímann og útskýrir í hverju sú aðstoð felst. „Andlát verða helst á sjúkrahúsum, hjúkrunarheimilum eða í heimahúsum. Þá sjáum við um að flytja hinn látna í líkhús og þá tekur meðal annars við ákvörðun um val kistu. FjölSmíð, líkkistuvinnustofa Hálfdáns, framleiðir meðal annars kistur frá grunni, af öllum gerðum og eins eru í boði kistur sem koma frá útlöndum, meðal annars úr eik, birki og furu. Einnig erum við með ýmsar tegundir af duftkerum en það hefur verið mikil aukning í bálförum síðustu árin. Allar kistur og duftker sem við höfum er hægt að skoða á heimasíðu okkar uth.is." Útfararþjónusta Hafnarfjarðar selur meðal annars kistur frá danska framleiðandanum Tommerup en í tilefni af 100 ára afmæli Tommerup árið 2010 er svokölluð demantslína komin í framleiðslu, hönnuð af Jakob Jensen. Er því nú hægt að fá kistu sem hefur útlit eins og demantur. Auk kistunnar eru líkföt og rúmföt, svo sem sæng, koddi og blæja, valin og ákveðið hvernig búa skuli um hinn látna í samráði við aðstandendur. „Við sjáum um að útvega það sem fólk vill en ofan á kistuna fara ýmist fallegar blómaskreytingar eða að kistan er sveipuð íslenska fánanum. Líkmenn þurfa að vera 6-8. Við útvegum kross og skilti á leiði, sjáum um milligöngu varðandi tónlistar-flutning og prentun á sálmaskrá," segir Hálfdán, en það munar miklu fyrir aðstandendur að hafa leiðandi hönd í gegnum ferlið. „Við sjáum einnig um samskipti við starfsmenn kirkjugarðanna og í raun að allt sé tilbúið fyrir útfarar¬daginn sem og kistulagninguna," segir Hálfdán, en starfsmenn Útfararþjónustunnar taka á móti aðstandendum við kistulagninguna, eru þeim innan handar og sjá til þess að allt sé tilbúið. Að morgni útfarardags er kistan flutt í kirkjuna og þegar aðstandendur koma til kirkju er farið yfir með líkmönnum hvernig þeir bera sig að í kirkju og kirkjugarði. „Líklega munar mestu með okkar þjónustu að við aðstoðum við hvert smáatriði. Fólk þarf því ekki að fara á marga staði, sem léttir undir og gerir viðkynnin persónulegri," segir Frímann að lokum.
Sérblöð Mest lesið Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Sjálfskaparvíti Venesúela: Sósíalíska draumaríkið sem kollvarpaðist í martröð Viðskipti erlent Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó Atvinnulíf Óvissa með umboð lækkar skuld Costco um fleiri milljónir Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Ein og hálf milljón í sekt vegna leyfislausrar Airbnb útleigu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira