Fimmta framboðið til stjórnar SVFR Karl Lúðvíksson skrifar 14. nóvember 2011 09:17
Fimmta framboðið til stjórnar SVFR hefur borist skrifstofu og er frá Eiríki St. Eiríkssyni félagsmanni númer 605. Því er nokkuð ljóst að fimm frambjóðendur eru í þrjú stjórnarsæti á aðalfundi félagsins þann 26. nóvember næstkomandi, því harla ólíklegt er að framboð berist í bréfpósti. Áður höfðu gefið kost á sér þeir Árni Friðleifsson, Bernhard A Petersen, Hilmar Jónsson og Hörður Birgir Hafsteinsson. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst mánudaginn 21.nóvember. Þess ber að geta að borist hafa lagabreytingatillögur sem bornar verða undir aðalfund. Aðalfundur Stangaveiðifélags Reykjavíkur verður haldinn laugardaginn 26. nóvember á Grand Hótel í Reykjavík. Fundurinn hefst klukkan 13.30 Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. Rétt til fundarsetu hafa allir skuldlausir félagsmenn. Birt með góðfúslegu leyfi SVFR
Stangveiði Mest lesið Nýjar tölur úr laxveiðiánum Veiði Spennandi veiðileyfi í lax í júní Veiði Hreinsunardagur í Elliðaánum á laugardaginn Veiði Svona losar þú veiðikróka úr húðinni Veiði Eldislaxar veiðast í mörgum ám Veiði Haustveiðin með ágætum í Eystri Rangá Veiði Laxar og hnúðlaxar í Ásgarði Veiði Gæti orðið kuldaleg veiðiopnun Veiði Laxinn mættur í Elliðaárnar Veiði Fyrsta flugan undir í vor Veiði