Karen: Skíttöpum í Höllinni ef við spilum svona Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. febrúar 2011 22:04 Karen Knútsdóttir. Mynd/Vilhelm
Karen Knútsdóttir skoraði 7 mörk fyrir Fram í kvöld þegar liðið tryggði sér sæti í bikarúrslitaleiknum annað árið í röð með því að vinna sjö marka sigur á HK, 32-25. „Ég er ánægð með þennan sigur og vera komin í Höllina en þetta var ekki góður leikur af okkar hálfu. Við ætluðum að gera þetta af fullum krafti og klára þetta strax en það tókst ekki í kvöld," sagði Karen. Fram var 19-9 yfir í hálfleik en eftir 17 mínútna leik í seinni hálfleik var staðan orðin 23-19. „Við ætluðum að byrja seinni hálfleik af krafti og klára þetta á fyrstu 10 mínútunum en við gerðum allt öfugt við það sem við ætluðum að gera. Við skíttöpum í Höllinni ef við ætlum að spila svona," sagði Karen en þær unnu næstu sex mínútur 6-0 eftir leikhlé frá Einari Jónssyni þjálfara. „Við fengum aðeins að heyra það frá Einari og hann skerpti á nokkrum hlutum. Við náðum aðeins að rífa okkur upp og vinna þær með sjö mörkum," sagði Karen sem sagði að vanmat hafi aldrei verið inn í myndinni. „Fyrir tveimur árum töpuðum við fyrir FH í undanúrslitunum og það situr ennþá alveg í manni. Maður þarf að klára hvern einasta leik í svona bikarkeppni og má ekki vera kominn í Höllina fyrir undanúrslitaleikinn," sagði Karen. „Ég varð spennt eftir að hafa sé Val vinna í gær og langaði í Höllina aftur. Núna getum við farið að einbeita okkur að Valsliðinu," sagði Karen og bætti við: „Þær eru búnar að vinna óþarflega marga úrslitaleiki á móti okkur en við unnum bikarinn síðast og ætlum bara að vinna hann aftur. Þetta verður skemmtilegur og erfiður úrslitaleikur því Valur er með hörkulið. Við þurfum að gera miklu miklu betur í þeim heldur en í kvöld og við leggjumst bara yfir það á næstu dögum," sagði Karen að lokum.
Olís-deild kvenna Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Sýður á Svisslendingum Fótbolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Fleiri fréttir Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Sjá meira