Sagður hafa slegið móðurina við brjóstagjöf: Fær dæturnar út 8. febrúar 2011 15:00 Móðirin lagði fram mynd af áverkum sem hún segir vera eftir að faðirnn sló hana þegar hún var að gefa brjóst Mynd úr safni
Héraðsdómur Austurlands hefur fallist á kröfu föður um að þrjár dætur hans verði færðar úr umsjá móður þeirra og til hans. Móðirin flúði með stúlkurnar frá Danmörku til Íslands vegna andlegs og líkamlegs ofbeldis sem hún segir föður stúlknanna hafa beitt sig. Þá taldi hún börnunum beinlínis stafa hætta af umgengni við föður sinn, að því er segir í dómi, og segir móðirin hann hafa beitt þau ofbeldi. Faðirinn höfðaði hins vegar mál vegna þess að hún nam dæturnar brott gerði honum ókleift að umgangast þær, eins og hann hefur rétt á. Stúlkurnar eru 3, 4 og 6 ára gamlar.Nam dæturnar brott Móðirin og faðirinn voru í óvígðri sambúð þegar þau eignuðust stúlkurnar en gengu í hjúskap árið 2009 í Danmörku og fóru sameiginlega með forsjá stúlknanna. Í mars 2010 fór móðirin með stúlkurnar til Íslands án samþykkis föðurins sem tilkynnti brottnámið til lögreglu. Ennfremur lagði hann fram beiðni til fjölskyldudeildar danska dómsmálaráðuneytisins sem aðhafðist ekki vegna málsins. Móðirin kom aftur til baka með börnin til Danmerkur í apríl. Þau hófu ekki aftur sambúð en stúlkurnar fóru reglulega til föður síns um helgar.Voru ekki á leikskólanum Þann 23. október hafði verið ráðgert að faðirinn sækti stúlkurnar í skóla og leikskóla en þegar hann kom þangað voru þær ekki þar. Síðar kom í ljós að móðir þeirra hafði sent honum tölvupóst þennan sama dag og tilkynnt honum að þær væru fluttar aftur til Íslands. Málið sem hér um ræðir er þingfest í lok nóvember. Lögmaður föður er Sveinn Andri Sveinsson en lögmaður móður er Valborg Þ. Snævarr.Skapgerðarbrestir Í greinargerð móður segir að hún hafi sætt andlegu og líkamlegu ofbeldi af hálfu föðurins. Hann hafi jafnframt beitt börn þeirra og son hennar andlegu og líkamlegu ofbeldi. Hún segir að fljótlega eftir að þau kynntust hafi farið að bera á skapgerðarbrestum hjá honum.Sagður hafa hrint henni óléttri „Reiðiköst sóknaraðila hafi bitnað á allri fjölskyldunni. Hafi hann m.a. átt það til að henda hlutum og rjúka út og láta sig hverfa svo tímum skipti. Í lögregluskýrslu dags. 26. júlí 2010 hafi varnaraðili tilkynnt andlegt og líkamlegt ofbeldi sóknaraðila. Komi m.a. fram í umræddu skjali að þann 27. júní 2008 hafi sóknaraðili slegið varnaraðila í eitt af mörgum skiptum. Hafi varnaraðili verið að gefa barni þeirra brjóst þegar sóknaraðili hafi reiðst skyndilega og hafi slegið hana. Skýrslunni fylgi ljósmynd af áverka varnaraðila. Vakin skuli athygli á því að í lögregluskýrslunni sé tekið fram að lögreglan á E hafi vitað að sóknaraðili ætti til að fá bræðisköst sem hann hafi látið bitna á fjölskyldu sinni en ekki hafi verið vitað nákvæmlega hvernig hegðun hans hafi verið háttað. Þá hafi sóknaraðili einnig slegið varnaraðila í andlitið og hrint henni upp á eldhúsborð en varnaraðili hafi þá verið ólétt af yngsta barni þeirra," segir í greinargerðinni.Segir börnin hrædd við föður sinn Móðirin heldur því ennfremur fram að börnin séu hrædd við föður sinn,og tekur sem dæmi að hann hafi hent syni hennar niður stiga í reiðikasti, sparkað í bak einnar dóttur þeirra, hent púða í aðra og öskrað ítrekað á þau öll. Hún segir einnig að börnin hafi margoft orðið vitni að andlegu ofbeldi hans í garð móðurinnar. Kvennaathvarfið og geðdeild Eftir að móðirin hafði flúið til Íslands leitaði hún sér aðstoðar, meðal annars hjá Kvennaathvarfinu og á bráðamótttöku geðdeildar. Gunnar Hrafn Birgisson sálfræðingur var fenginn til að ræða við börnin til að kanna afstöðu þeirra til þess hjá hvoru foreldrinu þau vilja vera. Í skriflegri greinargerð hans kemur fram að eldri systurnar óska báðar eftir að vera hjá móður sinni á Íslandi. Sú yngsta hafði í samskiptum við sálfræðinginn færst undan að tjá sig en ,, ...af nánum samskiptum hennar við eldri systur sínar megi gera ráð fyrir að hún fylgi þeim að málum." Að mati sálfræðingsins eru stúlkurnar ekki dómbærar á hvað þeim er fyrir bestu. Hann telur þær líta á málið á svarthvítan hátt þannig að móðirin sé algóð en faðirinn alvondur, og að þeim þurfi að hjálpa að líta á málið í heild sinni.Telur stúlkurnar ekki hafa verið beittar ofbeldi Þá segir í dómi: ,,Framburður telpnanna í viðtölum þessum bendi að mati Gunnars Hrafns hvorki til þess að þær systur þrjár hafi orðið fyrir ofbeldi né orðið vitni að því. Sálrænt ástand þeirra bendi heldur ekki til þess að þær hafi orðið fyrir áföllum af völdum heimilisofbeldis eða annars. Þrátt fyrir það séu þær óöruggar gagnvart föður og hafi áhyggjur af því að hann kunni að taka þær frá móður þeirra." Niðurstaða dómara er að móðirin hafi gerst brotleg við lög þegar hún nam dæturnar frá Danmörku þar sem þær eiga lögheimili og hamlaði réttmætri umgengni föðurins við dætur sínar. Samkvæmt dómsorði verða dæturnar færðar úr umsjá hennar með beinni aðfararaðgerð ef hún kemur þeim ekki sjálf aftur til Danmerkur. Tekið er fram að dómurinn tekur ekki afstöðu til forræðis enda verði að útkljá það fyrir dönskum dómsstólum. Ekki er vitað hvort málinu verður áfrýjað til Hæstaréttar.
Mest lesið Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ Innlent Tígrisdýrið verður ekki aflífað Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Innlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira