Föstudagur á RFF - Gleði og náttúruleg efni 12. apríl 2011 22:00 Falleg herrapeysa frá hönnuðinum Sonju Bent.
Viðburðurinn Reykjavík Fashion Festival fór fram í annað sinn á dögunum. Tuttugu og tveir hönnuðir tóku þátt í ár og fór sýningin fram í Hafnarhúsinu. Á föstudagskvöldinu sýndu alls tíu hönnuðir haust- og vetrarlínur sínar og stóðu línur Eyglóar, Sruli Recht, Sonju Bent og Spaks manns spjara upp úr. Allar þessar línur innihéldu fallegar buxur og er því óhætt að spá því að síðbuxur verði vinsælar hér á landi næsta haust. Lína Sonju Bent var áberandi glaðleg og falleg og mætti kannski kalla þennan efnilega hönnuð okkar eigin Soniu Rykiel. Báðar vinna þær mikið með prjónaflíkur og á meðan rendur einkenna gjarnan fatnað Rykiel vinnur Sonja Bent að mestu með doppur. Lína Spaksmannsspjara virtist þó vera sú eina, fyrir utan línu Sruli, sem var greinileg haustlína og innihélt jakka, notalegar fóðraðar hettur og prjónaðar ermar. Hönnun Sruli Recht var fallega sniðin og skemmtileg og fatnaðurinn unninn úr náttúrulegum efnum eins og ull. Eygló var söm við sig og sýndi flottar flíkur með skemmtilegu beinamynstri sem kom mjög vel út.- smSpaksmannsspjarir sýndu heilsteypta og flotta haustlínu. Rauðu buxurnar voru einstaklega fallegar. Fréttablaðið/Daníel RúnarssonLoðfóðruðu hetturnar frá Spaksmannsspjörum væru góð eign fyrir næsta vetur.Sýning Sruli Recht var lauflétt og skemmtileg. Fyrirsæturnar voru kátir karlar sem stóðu sig afskaplega vel.Hönnun Sruli var úr náttúrulegum efnum eins og ull, bómull og gæru. Fötin voru fallega sniðin eins og Sruli er einum lagið.Línan hennar Sonju Bent var sumarleg og litaglöð.Brúnir tónar voru ríkjandi í línu Spaksmannsspjara.Sýning Sruli Recht var flott og lífleg.Sonja Bent sýndi skemmtilegar buxur í ýmsum litum og sokka skreytta slaufum..
RFF Mest lesið Val Kilmer er látinn Lífið „Fróunarklefinn“, versti leikstjóri heims og Teslu-skömmin Lífið „Mikilvægt að gera hluti sem hann yrði stoltur af“ Menning Vill kynlíf en ekki samband Lífið „Var ekkert búin að reikna saman þessi laun“ Lífið Jennifer Lawrence orðin tveggja barna móðir Lífið Forsetahjónin, Elísabet Jökuls og Hugleikur létu sig ekki vanta Lífið Rekur heimili fyrir unglingsmæður í Kenía fyrir hálfa milljón á mánuði Lífið „Ég held ég sé með niðurgang“ Lífið Upp á svið í háum hælum eftir Osteostrong Lífið samstarf Fleiri fréttir Biður drottninguna að blessa heimilið Krotaði á átta milljón krónu tösku móður sinnar Orðin þrítug og nennir ekkert að pæla í áliti annarra Versace stígur til hliðar eftir áratugastarf Hátísku-Laufey á fremsta bekk í París „Bara gaman þegar fólk er í sjokki yfir okkur“ Enginn nakinn á Óskarnum Sjá meira