Einn situr Geir 9. júní 2011 06:00 Æ já, alveg rétt hugsaði ég, þegar ég sá fyrir tilviljun sjónvarpsfréttirnar þar sem Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, sór af sér sakir. Ég hafði alveg gleymt að fylgjast með landsdómsmálinu og satt best að segja leiði ég hugann alltaf sjaldnar að hruninu mikla. Lífið hefur mjatlast einhvern veginn áfram, merkilegt nokk. Eins bálreið og ég var vegna hrunsins til að byrja með hefur hefndarþorstinn rjátlast af mér. Sögulegt uppgjör er þó í bígerð, stórbrotið mál skal til lykta leitt. Landsdómur hefur aldrei verið kallaður saman í sögu lýðveldisins og skrafað er um fyrstu „pólitísku réttarhöld“ Íslandssögunnar á kaffistofum, hver niðurstaða þeirra verði og hvaða tilgangi þau eigi að þjóna. Þarna sátu nú spariklæddir dómararnir fimmtán, skipaðir af fyrrverandi samstarfsfélögum sakbornings, við grændúkuð borð. Grafalvarlegir á svipinn virtust þeir reiðubúnir að draga loks til ábyrgðar þá sem sváfu á verðinum meðan fjármálamennirnir sigldu skútunni svo rækilega upp á sker að hún hefur marað í hálfu kafi síðan. Eða hvað? Við borð sakbornings sat bara einn maður. Geir. Fyrrverandi fjármálaráðherra, viðskiptaráðerra og utanríkisráðherra var hvergi að sjá, né seðlabankastjóra eða forstjóra Fjármálaeftirlitsins, ef út í það er farið. Af hverju í ósköpunum sitja ráðherrarnir fyrrverandi ekki þarna við hlið Geirs eins og þeir gerðu meðan þeir störfuðu saman í ríkisstjórn? Þar lögðu þau á ráðin og tóku ákvarðanir í sameiningu, þó að ég viti ekkert hvernig starfsreglur þau viðhöfðu sín á milli. Það skiptir heldur engu máli hvort einhver var frekari á völdin en annar, hver ráðherra hlýtur að bera ábyrgð á því sem gerist í málaflokki hans. Fangelsisvistar er krafist yfir Geir. Hann sagði þungbært að standa í þessum sporum og lái honum hver sem vill. Hann sagði málatilbúninginn hefndaraðgerðir fyrrverandi pólitískra andstæðinga hans gegn honum, og ég stóð mig að því að kinka hugsandi kolli. Dómararnir voru jú skipaðir af fólki sem margt hefur setið á Alþingi svo árum skiptir, líka árin í aðdraganda hrunsins. Get ég tekið mark á því sem á að heita stærstu réttarhöld sögunnar í einu viðamesta máli sögunnar þegar aðeins einn maður er sóttur til saka? Það sem ég held að hinir fyrrverandi ráðherrar hljóti að anda léttar, sloppnir fyrir horn, stikkfrí. Enda láta þeir lítið fyrir sér fara. Þeir bera þó jafnmikla ábyrgð gagnvart mér, ég gleymi því ekkert. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Landsdómur Ragnheiður Tryggvadóttir Mest lesið Þegar strákar og menn hætta að svara Steindór Þórarinsson Skoðun Spænski draumurinn – Ungt fólk í leit af sól, rólegheitum og eigið fé Hans Birgisson Skoðun Kjósa Íslendingar með fótunum? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Þegar Alþingi virkar fyrir Ísland Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Gervigreind í ráðningum - stuðningur eða staðgengill? Helga Jóhanna Oddsdóttir Skoðun Það er mikið talað um ESB. En hver á Ísland í raun? Valerio Gargiulo Skoðun Þú þarft ekki samninginn til að sjá það sem mestu skiptir Daði Freyr Ólafsson Skoðun Mikilvægir áfangar í orkumálum Vestfjarða Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Engar formlegar aðlögunarviðræður við ESB mögulegar án umsóknar Íslands um aðild Júlíus Valsson Skoðun Fíllinn í stofunni Eldur Smári Kristinsson Skoðun
Engar formlegar aðlögunarviðræður við ESB mögulegar án umsóknar Íslands um aðild Júlíus Valsson Skoðun
Engar formlegar aðlögunarviðræður við ESB mögulegar án umsóknar Íslands um aðild Júlíus Valsson Skoðun