Tveir heimar mætast 16. júní 2011 16:00 Snillingar Kasse Mady Diabate og Bassekou Kouyate troða upp með Afrocubism í Hörpu síðar í mánuðinum.nordicphotos/Getty
Afrísk kúbanska súpergrúppan Afrocubism er væntanleg til Íslands til að halda tónleika í Eldborgarsal Hörpu 28. júní. Trausti Júlíusson kynnti sér þessa merku sveit og spáði í það hvers er að vænta á þessum stóra heimstónlistarviðburði. Árið 1996 stóð til að úrval malískra tónlistarmanna flygi til Kúbu til að hitta nokkra af færustu söngvurum og hljóðfæraleikurum eyjunnar. Hugmyndin var að þessir hópar gerðu plötu sem blandaði saman tónlistarhefð landanna tveggja. Af ástæðum sem ekki eru á hreinu komu afrísku hæfileikamennirnir aldrei til Kúbu og í staðinn gerðu kúbönsku listamennirnir öðruvísi plötu. Sem betur fer segja sumir, því að sú plata, Buena Vista Social Club, seldist í milljónum eintaka og kom af stað heimstónlistarvakningu sem enn stendur yfir. Eftir útkomu Buena Vista Social Club jókst áhugi fyrir kúbanskri tónlist til muna. Á síðustu árum hefur malísk tónlist líka verið að gera það gott á heimsvísu. Að fjórtán árum liðnumÞað var Nick Gold hjá World Circuit útgáfunni sem fékk hugmyndina árið 1996 og í fyrra, fjórtán árum seinna, datt honum í hug að láta hana verða að veruleika. Hann hóaði í nokkra eftirlifandi meðlimi Buena Vista klíkunnar og marga af frægustu tónlistarmönnum Malí og saman gerðu þeir plötuna Afrocubism sem kom út í október í fyrra. Á plötunni eru bæði lög eftir Kúbverjana og Malímennina og það verður að segjast að þessir tveir tónlistarheimar blandast mjög vel og útkoman er áheyrileg. Það kemur svo sem ekki á óvart, þar sem kúbönsk tónlist byggir að nokkru leyti á afrískri tónlist og tónlist frá Kúbu hefur lengi notið vinsælda í Vestur-Afríku, þ.á m. í Malí. Hróarskelda og HarpaAfrocubism-platan sló samstundis í gegn hjá heimstónlistarunnendum og var á listum flestra heimstónlistarmiðla yfir bestu plötur ársins 2010. Í kjölfar útgáfunnar var blásið til mikillar tónleikaferðar sem enn stendur yfir. Á meðal viðkomustaða sveitarinnar í sumar eru fjölmargar tónlistarhátíðir, þ.á m. Hróarskelda og tónleikahús eins og Royal Albert Hall í London og Harpa í Reykjavík. Það er óhætt að hvetja unnendur bæði afrískrar og kúbanskrar tónlistar til þess að láta sig ekki vanta í Eldborg 28. júní.
Mest lesið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Lífið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Lífið Íhuga að skrifa bók um kaffihúsin á þúsund kílómetra hjólarúnti Lífið Walking Dead-leikkona látin Lífið Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Menning Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira