Lögregla eykur viðbúnað vegna árásanna 23. júlí 2011 08:00 Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri segir lögregluna hér í stöðugu sambandi við lögregluyfirvöld á Norðurlöndunum. Mynd/E.Ól
Lögreglan hefur gert ákveðnar ráðstafanir hér á landi vegna atburðanna í Noregi. Þetta sagði Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri við Fréttablaðið síðdegis í gær. „Ég ræði ekki nánar í hverju þessar ráðstafanir eru fólgnar, en það má segja að okkar viðbúnaður vegna þess sem gerst hefur í Ósló hafi verið aukinn, það segir sig sjálft," segir ríkislögreglustjóri. „Við erum með ákveðnar áætlanir sem gripið er til þegar atburðir í líkingu við þetta eiga sér stað." Haraldur sagði lögregluna á Íslandi fylgjast mjög vel með gangi mála í Noregi og vera í stöðugu sambandi við lögregluyfirvöld á Norðurlöndunum. „Benda má á að greiningardeild ríkislögreglustjóra kynnti ríkisstjórninni nýtt hættumat í júní. Í því höfðu verið teknar saman upplýsingar um vaxandi hryðjuverkaógn á Norðurlöndunum. Ef um hryðjuverk er að ræða í Noregi, eins og flest bendir til þessa stundina, þá er þessi ógn orðin að veruleika á Norðurlöndum, eins og spáð var í þessari skýrslu greiningardeildar."- jss
Hryðjuverk í Útey Noregur Tengdar fréttir Sprenging í Osló Sprenging varð í miðborg Osló um tuttugumínútur yfir eitt að íslenskum tíma og er mikil ringulreið í borginni vegna þessa. Lítið er vitað um stöðuna en rúður sprungu. Sprengingin varð í hverfi þar sem fjölmargar byggingar norsku ríkisstjórnarinnar eru, en þar er jafnframt bygging Verdens Gang. Fram kemur á fréttavef Aftenposten að margir séu slasaðir. Blóð sást í andliti og á höndum margra. Ekki er vitað hvort um hryðjuverkaárás var að ræða. 22. júlí 2011 14:04 Stoltenberg: Noregur í grafalvarlegri stöðu Norska lögreglan hefur staðfest að Jens Stoltenberg forsætisráðherra er í öruggu skjóli. Stoltenberg segir sjálfur við norska ríkisútvarpið og staða Noregs sé grafalvarleg. 22. júlí 2011 18:04 Biskup sendir Norðmönnum samúðarkveðjur Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur sent samúðarkveðjur til Ole Christian Kvarme, biskups í Osló, og til Dag Wernø Holter, sendiherra Noregs á Íslandi, vegna þeirra árásanna í Osló og Útey í dag. 22. júlí 2011 21:41 Gríðarleg sprenging segir Íslendingur í Osló "Þetta hefur verið gríðarleg sprengja miðað við hvað allt hristist og þetta langt í burtu,“ segir Haukur Jósef sem staddur er í Osló, um tveimur kílómetrum frá stjórnarráðshverfinu, þar sem sprengja sprakk um klukkan tuttugu mínútur yfir eitt að íslenskum tíma. 22. júlí 2011 14:38 Forsætisráðherra Noregs í felum Forsætisráðherra Noregs, Jens Stoltenberg, hefur að ráði lögreglu ákveðið að greina ekki frá því hvar hann heldur til eftir sprengjuárás í miðborg Oslóar síðdegis í dag. Skrifstofur forsætisráðherrans eru í skrifstofubyggingunni sem fór einna verst út úr árásinni. 22. júlí 2011 16:32 Árásarmaðurinn er norskur Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segir Norðmenn vera litla en stolta þjóð sem láti ekki hræða sig. Í kvöld kom Stoltenberg í fyrsta sinn fram eftir árásirnar í Osló og Útey í dag. Hann ræddi þá við blaðamenn ásamt dómsmálaráðherranum Knut Storberget. Stoltenberg sagði hugsanir sínar og bænir vera hjá hinum særðu og ættingjum þeirra sem misstu ástvini í dag. 22. júlí 2011 20:53 Boðað til minningarathafnar Boðað hefur verið til minningarathafnar við Tjörnina í Reykjavík á morgun vegna árásanna á Osló og í Útey í dag. "Þeir sem vilja geta mætt með kerti,“ segir á síðu á samskiptavefnum Facebook sem stofnuð hefur verið vegna athafnarinnar. Athöfnin hefst klukkan 18. 22. júlí 2011 20:33 Obama vottar Norðmönnum samúð sína Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir atburðina í Noregi í dag sýna að alþjóðasamfélagið verði að vinna saman til að koma í veg fyrir hryðjuverk. Hann vottar Norðmönnum samúð sína og hefur heitið norskum stjórnvöldum fullum stuðningi við rannsókn árásanna í Osló og Útey. 22. júlí 2011 19:47 Óttast að sprengja sé í Útey Óttast er að það sé sprengja á Útey, þar sem að minnsta kosti fjórir voru skotnir til bana í dag. Þetta staðfestir norska lögreglan við norska ríkisútvarpið. 22. júlí 2011 18:17 Mikill ótti í Osló Það greip um sig ótti í Osló þegar sprengingin sprakk, segir Daníel Ingólfsson, sem staddur var í um 300 - 400 metra fjarlægð frá staðnum þar sem sprengjan sprakk. "Við sátum beint hjá ráðhúsinu, um svona 400 metrum frá. Þetta var mjög mikil sprenging," segir Daníel. Stuttu seinna hafi fólk séð reyk. 22. júlí 2011 15:30 Allt að 30 myrtir í Útey Norska ríkisútvarpið og dagblaðið Verdens Gang hafa eftir sjónarvottum að þeir hafi séð að minnsta kosti 20-30 látna á eyjunni Útey. Þar hófst á miðvikudaginn árleg sumarhátíð ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins en talið er að hátt í 700 manns hafi verið á eyjunni í dag þegar karlmaður í gervi lögreglumanns hóf að skjóta á fólk í kringum sig. 22. júlí 2011 19:06 Byssumaðurinn sást í Osló fyrr í dag Maðurinn sem hóf skothríð á eyjunni Útey seinnipartinn sást í miðborg Osló skömmu áður en sprengja sprakk þar í dag. Hann er nú yfirheyrður af lögreglu sem kannar hvort hann beri einnig ábyrgð á árásunum í höfuðborginni, að því er fram kemur á vef norska dagblaðsins Verdens Gang. Árásarmanninum er sagður norrænn í útliti og hávaxinn. Lögreglan upplýsir ekki hvort maðurinn sé norskur ríkisborgari. 22. júlí 2011 20:14 Staðfest að sprengja fannst í Útey Ósprengdar sprengdur fundust í Útey í dag. Ekki er vitað hverskonar sprengjur er um að ræða. Þetta staðfesti lögreglustjórinn í Osló á blaðamannafundi sem var haldinn um klukkan ellefu að dönskum tíma í nótt. 22. júlí 2011 23:20 Viðbúnaður á Íslandi ekki verið aukinn vegna sprengjunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra er ekki með aukinn viðbúnað hér á landi vegna sprengjuárásarinnar í Osló. Guðrún Jóhannesdóttir, fulltrúi almannavarnadeildarinnar segir að það sé stjórnvalda að taka ákvörðun um slíkt. 22. júlí 2011 15:56 Einn maður handtekinn vegna skotárásarinnar Lögreglan í Noregi hefur handtekið mann sem grunaður er um að bera ábyrgð á skotárásinni í Utøya í Noregi í dag. 22. júlí 2011 17:22 Stoltenberg ætlaði að ávarpa ungliða á eyjunni Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Verkamannaflokksins, átti á morgun að flytja ávarp á eyjunni þar sem maður hóf að skjóta á ungmenni fyrr í dag. Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra, heimsótti eyjuna fyrr í dag og Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, var á eyjunni í gær. Hér má sjá viðtal við hann þar sem talar um að norska ríkisstjórnin styður stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. 22. júlí 2011 17:51 Sprengja orsakaði sprenginguna - fleiri en einn látinn Lögreglan í Osló hefur staðfest að sprengja hafi orsakað öfluga sprengingu í miðbæ borgarinnar, en sprengingin olli mikilli eyðileggingu. Þetta kemur fram í beinni útsendingu á fréttastöðinni Sky. 22. júlí 2011 15:19 Kunna að vera fleiri sprengjur á svæðinu Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, lét þau orð falla í viðtali við Vísi að fleiri sprengjur kynnu að vera í Osló, á svæðinu þar sem miklar sprengingar urðu á öðrum tímanum í dag. 22. júlí 2011 15:50 Húsleit hjá byssumanninum Norska lögreglan gerði nú ellefta tímanum í kvöld húsleit í íbúð mannsins sem handtekinn var í Útey seinnipartinn í dag. Maðurinn fór klæddur eins og lögreglumaður í Útey og sagðist vera kominn þangað vegna sprengjunnar sem sprakk í Osló fyrr í dag. Skömmu síðar hóf hann að skjóta á fólk í kringum sig. Lögreglan hefur staðfest að 10 eru látnir en fullyrt er að tala fallinna muni hækka. Fyrr í kvöld var í norskum fjölmiðlum haft eftir sjónarvottum að allt að 30 væru látnir. 22. júlí 2011 22:54 Lögreglan staðfestir að minnst 10 hafi fallið í skotárásinni Við höfum fengið upplýsingar um það að tíu hafi fallið, en við búumst við því að tala fallinna munu hækka, segir norska lögreglan í fréttatilkynningu um skotárásina í Útey í dag. Norska ríkissjónvarpið og Verdens Gang höfðu eftir vitnum í dag að á þriðja tug manna væru látnir Norska Aftenposten segir að 17 manns hafi verið fluttir á sjúkrahús. "Miðað við það sem ég hef séð hafa minnst fjórir verið skotnir og drepnir,“ segir umdæmisstjóri ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins í Þelamörk. 22. júlí 2011 22:07 Mest lesið Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Innlent Stuðningur við Trump kostaði sambandið við Elon Erlent „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Innlent Tvær á toppnum Innlent Annarri ákærunni formlega vísað frá Erlent Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Innlent Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Innlent Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Innlent Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ Innlent Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Innlent Fleiri fréttir Kostaði umdeilda færslu á síðu flokks sem hann er hættur í Flugvélar og fólk skautuðu á Hafravatni Tvær á toppnum Gasmengun helsta hættan í Grindavík „Það má Guð vita“ Bælin tóm og Diegos sárt saknað: „Hann er einn af okkur“ „Girtu þig nú í brók og horfstu í augu við sjálfan þig“ Bjartsýni í Karphúsinu og kattarins Díegó leitað Lofa fullum trúnaði ef Diego verður skilað Leitaði trúnaðarupplýsinga til að staðfesta orðróm en fékk sparkið Ákærður fyrir stunguárásina á Menningarnótt Dómsmál setur áform Heidelberg í uppnám Enn talsverður kraftur í eldgosinu Bitist af mikilli hörku um atkvæði íbúa í Ölfusi Breytinga að vænta á fylgi Flokks fólksins Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning Sást á öryggismyndavélum þegar Diego var numinn á brott Lögreglumenn furðuðu sig á vígahnetti Kjörin í stjórn Evrópska ungmennavettvangsins Jane Goodall hvetur stjórnvöld til að beita sér gegn hvalveiðum Opna Grindavík á ný Sérfræðingar rýna í stöðuna á lokasprettinum Ráðgjafar- og greiningarstöð fjársvelt meðan ásókn í þjónustu eykst Töluverðar líkur á leiðindaveðri á kjördag Sjálfstæðismaður vill ekki að sitt fólk striki Dag út Íslensk kona í haldi: Hótelherbergi á Tenerife þakið blóði Rannsókn lokið á stunguárásinni við Skúlagötu Fundað í Karphúsi og hraunið kælt á Reykjanesi Sjúkratryggingar auglýsa eftir rekstraraðilum hjúkrunarheimila Sjá meira
Sprenging í Osló Sprenging varð í miðborg Osló um tuttugumínútur yfir eitt að íslenskum tíma og er mikil ringulreið í borginni vegna þessa. Lítið er vitað um stöðuna en rúður sprungu. Sprengingin varð í hverfi þar sem fjölmargar byggingar norsku ríkisstjórnarinnar eru, en þar er jafnframt bygging Verdens Gang. Fram kemur á fréttavef Aftenposten að margir séu slasaðir. Blóð sást í andliti og á höndum margra. Ekki er vitað hvort um hryðjuverkaárás var að ræða. 22. júlí 2011 14:04
Stoltenberg: Noregur í grafalvarlegri stöðu Norska lögreglan hefur staðfest að Jens Stoltenberg forsætisráðherra er í öruggu skjóli. Stoltenberg segir sjálfur við norska ríkisútvarpið og staða Noregs sé grafalvarleg. 22. júlí 2011 18:04
Biskup sendir Norðmönnum samúðarkveðjur Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur sent samúðarkveðjur til Ole Christian Kvarme, biskups í Osló, og til Dag Wernø Holter, sendiherra Noregs á Íslandi, vegna þeirra árásanna í Osló og Útey í dag. 22. júlí 2011 21:41
Gríðarleg sprenging segir Íslendingur í Osló "Þetta hefur verið gríðarleg sprengja miðað við hvað allt hristist og þetta langt í burtu,“ segir Haukur Jósef sem staddur er í Osló, um tveimur kílómetrum frá stjórnarráðshverfinu, þar sem sprengja sprakk um klukkan tuttugu mínútur yfir eitt að íslenskum tíma. 22. júlí 2011 14:38
Forsætisráðherra Noregs í felum Forsætisráðherra Noregs, Jens Stoltenberg, hefur að ráði lögreglu ákveðið að greina ekki frá því hvar hann heldur til eftir sprengjuárás í miðborg Oslóar síðdegis í dag. Skrifstofur forsætisráðherrans eru í skrifstofubyggingunni sem fór einna verst út úr árásinni. 22. júlí 2011 16:32
Árásarmaðurinn er norskur Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segir Norðmenn vera litla en stolta þjóð sem láti ekki hræða sig. Í kvöld kom Stoltenberg í fyrsta sinn fram eftir árásirnar í Osló og Útey í dag. Hann ræddi þá við blaðamenn ásamt dómsmálaráðherranum Knut Storberget. Stoltenberg sagði hugsanir sínar og bænir vera hjá hinum særðu og ættingjum þeirra sem misstu ástvini í dag. 22. júlí 2011 20:53
Boðað til minningarathafnar Boðað hefur verið til minningarathafnar við Tjörnina í Reykjavík á morgun vegna árásanna á Osló og í Útey í dag. "Þeir sem vilja geta mætt með kerti,“ segir á síðu á samskiptavefnum Facebook sem stofnuð hefur verið vegna athafnarinnar. Athöfnin hefst klukkan 18. 22. júlí 2011 20:33
Obama vottar Norðmönnum samúð sína Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir atburðina í Noregi í dag sýna að alþjóðasamfélagið verði að vinna saman til að koma í veg fyrir hryðjuverk. Hann vottar Norðmönnum samúð sína og hefur heitið norskum stjórnvöldum fullum stuðningi við rannsókn árásanna í Osló og Útey. 22. júlí 2011 19:47
Óttast að sprengja sé í Útey Óttast er að það sé sprengja á Útey, þar sem að minnsta kosti fjórir voru skotnir til bana í dag. Þetta staðfestir norska lögreglan við norska ríkisútvarpið. 22. júlí 2011 18:17
Mikill ótti í Osló Það greip um sig ótti í Osló þegar sprengingin sprakk, segir Daníel Ingólfsson, sem staddur var í um 300 - 400 metra fjarlægð frá staðnum þar sem sprengjan sprakk. "Við sátum beint hjá ráðhúsinu, um svona 400 metrum frá. Þetta var mjög mikil sprenging," segir Daníel. Stuttu seinna hafi fólk séð reyk. 22. júlí 2011 15:30
Allt að 30 myrtir í Útey Norska ríkisútvarpið og dagblaðið Verdens Gang hafa eftir sjónarvottum að þeir hafi séð að minnsta kosti 20-30 látna á eyjunni Útey. Þar hófst á miðvikudaginn árleg sumarhátíð ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins en talið er að hátt í 700 manns hafi verið á eyjunni í dag þegar karlmaður í gervi lögreglumanns hóf að skjóta á fólk í kringum sig. 22. júlí 2011 19:06
Byssumaðurinn sást í Osló fyrr í dag Maðurinn sem hóf skothríð á eyjunni Útey seinnipartinn sást í miðborg Osló skömmu áður en sprengja sprakk þar í dag. Hann er nú yfirheyrður af lögreglu sem kannar hvort hann beri einnig ábyrgð á árásunum í höfuðborginni, að því er fram kemur á vef norska dagblaðsins Verdens Gang. Árásarmanninum er sagður norrænn í útliti og hávaxinn. Lögreglan upplýsir ekki hvort maðurinn sé norskur ríkisborgari. 22. júlí 2011 20:14
Staðfest að sprengja fannst í Útey Ósprengdar sprengdur fundust í Útey í dag. Ekki er vitað hverskonar sprengjur er um að ræða. Þetta staðfesti lögreglustjórinn í Osló á blaðamannafundi sem var haldinn um klukkan ellefu að dönskum tíma í nótt. 22. júlí 2011 23:20
Viðbúnaður á Íslandi ekki verið aukinn vegna sprengjunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra er ekki með aukinn viðbúnað hér á landi vegna sprengjuárásarinnar í Osló. Guðrún Jóhannesdóttir, fulltrúi almannavarnadeildarinnar segir að það sé stjórnvalda að taka ákvörðun um slíkt. 22. júlí 2011 15:56
Einn maður handtekinn vegna skotárásarinnar Lögreglan í Noregi hefur handtekið mann sem grunaður er um að bera ábyrgð á skotárásinni í Utøya í Noregi í dag. 22. júlí 2011 17:22
Stoltenberg ætlaði að ávarpa ungliða á eyjunni Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi Verkamannaflokksins, átti á morgun að flytja ávarp á eyjunni þar sem maður hóf að skjóta á ungmenni fyrr í dag. Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra, heimsótti eyjuna fyrr í dag og Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, var á eyjunni í gær. Hér má sjá viðtal við hann þar sem talar um að norska ríkisstjórnin styður stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. 22. júlí 2011 17:51
Sprengja orsakaði sprenginguna - fleiri en einn látinn Lögreglan í Osló hefur staðfest að sprengja hafi orsakað öfluga sprengingu í miðbæ borgarinnar, en sprengingin olli mikilli eyðileggingu. Þetta kemur fram í beinni útsendingu á fréttastöðinni Sky. 22. júlí 2011 15:19
Kunna að vera fleiri sprengjur á svæðinu Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, lét þau orð falla í viðtali við Vísi að fleiri sprengjur kynnu að vera í Osló, á svæðinu þar sem miklar sprengingar urðu á öðrum tímanum í dag. 22. júlí 2011 15:50
Húsleit hjá byssumanninum Norska lögreglan gerði nú ellefta tímanum í kvöld húsleit í íbúð mannsins sem handtekinn var í Útey seinnipartinn í dag. Maðurinn fór klæddur eins og lögreglumaður í Útey og sagðist vera kominn þangað vegna sprengjunnar sem sprakk í Osló fyrr í dag. Skömmu síðar hóf hann að skjóta á fólk í kringum sig. Lögreglan hefur staðfest að 10 eru látnir en fullyrt er að tala fallinna muni hækka. Fyrr í kvöld var í norskum fjölmiðlum haft eftir sjónarvottum að allt að 30 væru látnir. 22. júlí 2011 22:54
Lögreglan staðfestir að minnst 10 hafi fallið í skotárásinni Við höfum fengið upplýsingar um það að tíu hafi fallið, en við búumst við því að tala fallinna munu hækka, segir norska lögreglan í fréttatilkynningu um skotárásina í Útey í dag. Norska ríkissjónvarpið og Verdens Gang höfðu eftir vitnum í dag að á þriðja tug manna væru látnir Norska Aftenposten segir að 17 manns hafi verið fluttir á sjúkrahús. "Miðað við það sem ég hef séð hafa minnst fjórir verið skotnir og drepnir,“ segir umdæmisstjóri ungliðahreyfingar norska Verkamannaflokksins í Þelamörk. 22. júlí 2011 22:07