Banna reykingar heima á vinnutíma 31. ágúst 2011 06:00 Nú er til umræðu að banna starfsfólki sveitarfélagsins Landskrona, sem vinnur heima, að reykja heima hjá sér.
Högni Hansson Nefnd um starfsmannamál í sveitarfélaginu Landskrona í Svíþjóð vill að starfsmönnum þess sem vinni heima verði bannað að reykja á vinnutíma eins og öðrum starfsmönnum sveitarfélagsins. Þetta finnst íslenskum umhverfisstjóra Landskrona, Högna Hanssyni, of langt gengið. „Ég veit ekki með hvaða rétti atvinnurekandi getur bannað fólki að reykja heima eða á leið til og frá vinnu og annað slíkt. Þar að auki segja þeir þetta gert til að koma í veg fyrir óbeinar reykingar. Ég hef ekki trú á því að margir verði fyrir þeim þegar reykt er heima,“ segir Högni sem er reyndar þekktur í Svíþjóð fyrir baráttu fyrir umhverfisvernd á mörgum sviðum. Högni tekur það fram að hann þekki vel til baráttunnar gegn reykingum. „Ég skrifaði fyrir þingmann fyrstu þingsályktunartillöguna um bann við reykingum á opinberum stöðum. Þetta var árið 1986. Hún var ekki samþykkt en árið 1993 voru sett slík lög.“ Að sögn Högna hafa í nokkrum sveitarfélögum verið settar reglur um bann við reykingum á vinnutíma opinberra starfsmanna sem starfa heima. „Mér vitanlega er þessu banni ekki fylgt eftir. Það er enginn sem veit hvort fólk reykir á vinnutíma eða ekki. Þá er þetta eins og hver önnur hræsni.“-ibs
Fréttir Innlent Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira