Harmageddon

Ný plata frá Lanegan

Mark Lanegan.
Mark Lanegan.
Getty: 034234
Mark Lanegan, sá mikli snillingur og söngvari hljómsveitarinnar sálugu Screaming Trees, sendir frá sér plötu í febrúar undir nafni Mark Lanegan Band.

Verður þetta fyrsta slíka platan frá árinu 2004 þegar hin frábæra Bubblegum kom út. Hún fékk mjög góðar viðtökur gagnrýnenda og fékk fjórar stjörnur af fimm mögulegum í blöðunum Q, Guardian og Uncut.

Nýja platan hefur fengið nafnið Blues Funeral, sem er einstaklega viðeigandi þar sem stíll Lanegans hefur verið afar jarðarfararlegur síðustu ár. Hann hefur verið upptekinn við hin og þessi verkefni og meðal annars sungið inn á tvær plötur með hljómsveitinni Soulsavers.



×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.