Ólöf Arnalds og Skúli á sólstöðutónleikum 21. desember 2011 13:00 Hélt sumarsólstöðutónleika í Grasagarðinum í júní og endurtekur nú leikinn á vetrarsólstöðum. Fréttablaðið/Vilhelm
Ólöf Arnalds heldur sína aðra sólstöðutónleika á árinu á Café Flóru í Grasagarðinum í Laugardal í kvöld ásamt Skúla Sverrissyni. Ólöf hélt vel heppnaða sumarsólstöðutónleika í Grasagarðinum í júní og snýr nú aftur til leiks á vetrarsólstöðum. Á tónleikunum flytur Ólöf efni af nýrri smáskífu, „Ólöf Sings" sem kom út í nóvember, sem og lög af nýrri plötu sem væntanleg er á nýju ári, auk eldra efnis í bland. Ólöf Arnalds og Skúli Sverrisson, bassaleikari og tónskáld, hafa verið nánir samverkamenn um hríð. Skúli stýrir upptökum á nýrri plötu Ólafar, sem er væntanleg með vorinu en hann kom líka að gerð fyrri breiðskífa Ólafar, Við og við og Innundir skinni. Þá vann Ólöf með Skúla á plötu hans, Seríu I, sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2006 í flokki sígildrar og samtímatónlistar, sem og Seríu II, sem kom út í fyrra.Skúli Sverrisson stýrir upptökum á nýrri plötu Ólafar.Skúli og Ólöf leiddu síðast saman hesta sína á Opnunartónleikum Listahátíðar í Reykjavík fyrr á þessu ári. Tónleikarnir á Café Flóru í kvöld hefjast klukkan 21 en húsið opnar klukkan 20. Miðaverð er 2.500 krónur og eru miðar seldir í forsölu á midi.is og í Smekkleysubúðinni á Laugavegi.
Tónlist Mest lesið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Bay segir skilið við Smith Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira