Tíska og hönnun

Karl Lagerfield gerir alvarlegar athugasemdir við útlit Pippu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Pippa Middleton, tv, ásamt Kate systur sinni.
Pippa Middleton, tv, ásamt Kate systur sinni. mynd/ afp.
Tískuhönnuðurinn Karl Lagerfield hefur enn einu sinni hneykslað fólk með ummælum sínum. Hann sagði á dögunum að hann kynni ekki við andlit Pippu Middleton, en Pippa er mágkona Vilhjálms Bretaprins.

Hönnuðurinn sagði að Pippa ætti einungis að sýna bakið á sér og að hún ætti í mestu vandræðum með útlit sitt. Einungis fáeinir dagar eru síðan að Lagerfield bað söngkonuna Adele afsökunar á því að hafa sagt að hún væri of feit. Daily Telegraph segir að Lagerfield hafi aftur á móti gefið Kate Middleton, eiginkonu Vilhjálms prins, mun betri einkunn og sagt hana vera fallega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.