Fimm milljóna tjón vegna kjúklinga og klósettpappírs Garðar Örn Úlfarsson skrifar 20. september 2012 08:15 Fallegur dagur við Ægissíðufoss. Svona vilja veiðimenn hafa umhorfs þegar þeir heimsækja bakka Ytri-Rangár. Mynd / Garðar Örn Úlfarsson
Leigutaki Ytri-Rangár vill að sveitarfélagið Rangárþing ytra greiði 5 milljóna króna bætur vegna tjóns sem varð er kjúklingaúrgangur lak frá sláturhúsi á Hellu í fyrra. Ekki okkar ábyrgð þótt við eigum fráveituna segir sveitarstjórinn. "Við getum ekki samþykkt að óskoðuðu máli að greiða skaðabætur enda er tjónið ekki af völdum sveitarfélagsins heldur þeirra sem nota fráveitu þess," segir Gunnsteinn Ómarsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra um kröfu Lax-ár ehf. um að sveitarfélagið borgi fimm milljónir króna vegna tjóns í Ytri-Rangá. Lax-á er leigutaki Ytri-Rangár sem er aflasælasta laxveiðiá landsins. "Þann 7. september 2011 urðu veiðimenn sem voru við veiðar í Ytri-Rangá varir við að í hana lak alls kyns úrgangur, meðal annars kjúklingafita, kjúklingainnyfli og klósettpappír," segir í bréfi sem Rangárþingi Ytra barst á dögunum frá lögmannskrifstofunni Lögmáli fyrir hönd Lax-ár. Í ljós hafi komið að úrangurinn stafaði frá sláturhúsi Reykjagarðs. Yfirflæði hafi orðið í veitukerfi. "Eins og gefur að skilja vakti mengun þessi mikinn viðbjóð meðal þeirra veiðimanna sem voru við veiðar í ánni og hættu þeir þegar veiðum og yfirgáfu ánna," segir í bréfi Lögmáls sem kveður Lax-á hafa orðið fyrir fjártjóni sem rekja megi til aðgerða eða eftir atvikum aðgerðarleysi Rangárþings ytra og starfsmanna Reykjagarðs. "Þeir veiðimenn sem áttu veiðidag þegar hið umrædda atvik átti sér stað hafa óskað eftir endurgreiðslu eða skaðabótum enda var áin ekki veiðafær. Þá er einnig ljóst að umbjóandi minn átti í erfiðleikum með að selja veiðileyfi í ánni sökum þeirra fjölmiðlaumfjöllunar sem átti sér stað vegna mengunarinnar," segir Lögmál og bætir við að koma hefði mátt í veg fyrir tjónið ef rétt hefði verði staðið að verki. Lax-á meti tjónið á 5.118.920 krónur. Þess sé óskað að sveitarfélagið taki afstöðu til þess hvort bótaskylda séu viðurkennd og til þess hvort skaðabætur verði greiddar. Einnig hefur verið leitað afstöðu Reykjagarðs til málsins. "Tjónið er talið nema rúmum fimm milljónum króna án þess að það sé á nokkurn hátt útskýrt," segir Gunnsteinn sveitarstjóri. Eins áður kom fram telur hann sveitarfélagið ekki bera ábyrgð á því sem aðrir setja ofan í fráveitukerfi þess. "Við funduðum með forsvarsmönnum Lax-á strax eftir þetta leiðindatilvik og niðurstaða þeirra funda var sú að tjónið yrði tekið saman og ábyrgðaraðila yrði leitað í framhaldinu og hugsanlegra trygginga sem á tjóninu gætu tekið," segir Gunnsteinn sem kveður málið nú til skoðunar hjá lögmanni sveitarfélagsins.
Stangveiði Mest lesið Veiði lokið í Eyjafjarðará Veiði Rýnt í tölur úr Stóru Laxá Veiði 11 ára 20 punda sjóbirtingur Veiði Hausttilboð hjá Veiðiflugum Veiði Norðurá komin yfir 1000 laxa og góður gangur í Langá Veiði Frostastaðavatn frábært fyrir unga veiðimenn Veiði Þrír risar á sömu stöngina á Nessvæðinu Veiði Verðlaunaflugur Veiðimannsins 2015 Veiði Blautur júní gæti bjargað veiðinni í sumar Veiði Nýtt Sportveiðiblað komið út Veiði