Straumvatn á striga 5. október 2012 13:52
Sigtryggur Bjarni Baldvinsson myndlistarmaður opnar sýninguna Þrír staðir í Gallerí Ágúst á laugardaginn. Á sýningunni eru ný málverk unnin upp úr þremur ljósmyndum teknum af vatni á ólíkum stöðum; við Font á Langanesi, Jökulsá á Fjöllum og hyl í smálæk á Barðaströnd. Þar hefur Sigtryggur myndað ólík vatnsyfirborð og reynt að fanga í málverkum sínum samspil náttúrunnar sem endurspeglast í hreyfingu vatnsins. Verkin eru unnin með olíu á striga og vatnslit á pappír. Sigtryggur Bjarni Baldvinsson stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri, Myndlista- og handíðaskóla Íslands og École des Arts Decoratifs í Strasbourg, Frakklandi og hefur nú haldið á þriðja tug einkasýninga. Sigtryggur hefur unnið langmest með málverk og undanfarinn áratug einbeitt sér að verkum út frá vatnsflötum, sér í lagi straumvatni. Sigtryggur sat í safnráði Listasafns Íslands um þriggja ára skeið og í stjórn Myndlistaskólans í Reykjavík í meira en áratug og hefur kennt þar. Verk eftir Sigtrygg má finna í öllum helstu söfnum landsins og hjá fjölmörgum fyrirtækjum og stofnunum.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira