Tíska og hönnun

Systur opna nýjan markað

Kitty og Laufey opna markað í dag.
Kitty og Laufey opna markað í dag. Smelltu á mynd til að stækka.
"Við systurnar verðum á markaðnum í dag föstudag og á morgun laugardag. Þetta virkar eins og Kolaportið. Margir með bása og miklu ódýrara," svarar Laufey Arnalds Johansen sem verður með sölubás þessa helgi ásamt systur sinni Kitty Johansen á Múlatorgi sem er við hliðina á Góða hirðinum.

Plássið á markaðnum kostar 2000 krónur dagurinn og 4000 krónur um helgar. Að sögn Laufeyjar mætir spákona á svæðið á morgun laugardag sem gefur stutta spá fyrir 1500 krónur. Þá verður líka boðið upp á fría andlitsmálningu fyrir börnin á laugardeginum. Berta rekur markaðinn sem er í Fellsmúla 28 - nánari upplýsingar á Múlatorg.com.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.