Tíska og hönnun

Svíar hrifnir af íslenskri hönnun

Linda segir marga Svía hafa áhuga á íslenskri hönnun en erfitt sé að nálgast hana þarlendis.
Linda segir marga Svía hafa áhuga á íslenskri hönnun en erfitt sé að nálgast hana þarlendis. mynd/úr einkasafni
"Ég er rétt nýbyrjuð að auglýsa eftir samstarfsaðilum á Facebook og það eru þegar 14 manns búnir að setja sig í samband við mig," segir Linda Hauksdóttir Stenström, sem hyggst setja upp síðu með íslenskri hönnun í Svíþjóð.

Linda segist hafa orðið mikið vör við það að Svíar hafi áhuga á íslenskri hönnun. Þeir eigi þó oft erfitt með að nálgast hana og fékk Linda því hugmyndina að síðunni. Undirbúningurinn er enn á byrjunarstigi og engir samningar hafa verið gerðir en Linda vonast þó til að geta opnað síðuna eftir þrjá til fjóra mánuði.

"Ég hef líka verið í sambandi við búðir hérna úti og margar þeirra hafa sýnt því áhuga að taka íslenska hönnun í sölu hjá sér. Í framhaldinu vonast ég því til að geta annast umboðssölu fyrir íslenska hönnuði," segir hún.

Sjálf hefur hún búið í Svíþjóð mestalla ævi, en á íslenska fjölskyldu í báðar ættir. Hún starfar í auglýsingabransanum þar ytra og þekkir því vel inn á markaðinn. "Ég vonast til að síðan verði bara nógu fjölbreytt og með alla flóru hönnunar.

Nú þegar er ég komin með fatahönnuði, skóhönnuði, listamenn og ljósmyndara í hóp væntanlegra samstarfsaðila, svo þetta lítur vel út enn sem komið er," segir hún og bætir við að hún taki vel á móti öllum íslenskum hönnuðum sem hafi áhuga á að selja sína vöru í gegnum síðuna.

- trs






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.