Samningar leikmanna Kristianstad renna út fyrir síðasta leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. október 2012 16:45 Sif Atladóttir (númer 2) þarf að ganga frá nýjum samningi fyrir lokaleik tímabilsins. Mynd/Daníel
Það gæti komið upp neyðarástand hjá Íslendingaliðinu Kristianstad í sænska kvennafótboltanum því forráðamenn félagsins verða að ganga frá nýjum samningum við leikmenn sína fyrir lokaleik tímabilsins. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar lið Kristianstad og með liðinu leika landsliðskonurnar Margrét Lára Viðarsdóttir, Sif Atladóttir, Katrín Ómarsdóttir og Guðný Björk Óðinsdóttir sem er að ná sér af krossbandasliti. Sænska kvennadeildin klárast ekki fyrr en 3. nóvember og er þetta í fyrsta sinn sem það fara fram leikir í ellefta mánuði ársins. Ástæðan er að hlé var gert á deildinni á meðan Ólympíuleikarnir í London fóru fram. Þetta þýðir að leikmenn Kristianstad renna út á samning í lok október og verða því samningslausir þegar kemur að síðasta leiknum. Samkvæmt reglum deildarinnar verða leikmenn að vera með samning til þess að fá að spila. „Við vorum búin að ganga frá öllum samningum okkar áður en í ljós kom að síðustu leikirnir yrðu spilaði svona seint. Þetta er mjög óheppilegt en að sjálfsögðu verðum við búin að ganga frá nýjum samningum," sagði Mikael Forsberg hjá Kristianstad við damfotboll.com.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hólmbert bjargaði stigi Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Casemiro og Suárez skoruðu báðir Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Bayern München skoraði ekki í fyrsta sinn í 59 leikjum Sveindís Jane og Angel City unnu mikilvægan sigur Haaland sló met Agüero Modric ætlar að halda áfram með Króatíu Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Schalke náði í stig gegn Bayern Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Raphinha nýr fyrirliði Barcelona Rúst hjá Rosenborg Arbeloa í brasi Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Misjafn árangur Íslendingaliðanna Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum 16 ára gamalt myndskeið af Messi vekur athygli Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjá meira