Tíska og hönnun

Í kjól sem minnti á viskustykki

Flott þrátt fyrir umdeildan kjól!
Flott þrátt fyrir umdeildan kjól!
Poppstjarnan Kylie Minogue mætti í heldur sérstökum, köflóttum kjól á Q verðlaunin í London um helgina. Hlaut hún heldur neikvæða dóma fyrir kjólinn sem var svartur og hvítu að lit og minnti jafnvel aðeins á viskustykki. Einnig var sniðið sérstakt og mynstrið ekki alveg fyrir alla.

Hvað finnst þér?

Þrátt fyrir misjafnar skoðanir á kjólnum þá má hún eiga það að hún er alltaf jafn glæsileg!
Kjóllinn er ber í bakið eins og sjá má.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.