Gagnrýni

Ljúf og heimilisleg afurð

Kjartan Guðmundsson skrifar
Eldar. Fjarlæg nálægð.
Eldar. Fjarlæg nálægð.
Eldar. Fjarlæg nálægð.



Keflvíkingarnir Valdimar Guðmundsson, sá afbragðsflinki og blæbrigðaríki söngvari, og Björgvin Ívar Guðmundsson, úr gæðasveitinni Lifun og fleiri böndum, kynntu dúettinn Elda og þessa fínu plötu sem hliðarverkefni samhliða öðrum störfum fyrir jólin, sem sýnir sig kannski helst í því að hvorki er verið að finna upp hjólið né reyna of mikið á þolgæði þess.

Stúdíóseta félaganna (ásamt góðu aðstoðarfólki, meðal annarra söngkvennanna Fríðu Dísar og Védísar Hervarar sem eiga frábæra spretti í röddum) á Siglufirði hefur skilað ljúfri og heimilislegri afurð, þar sem þjóðlagakennd kassagítarrólegheit eru í fyrirrúmi og yfir fáu sem engu er að kvarta varðandi allan flutning. Nokkur laganna eru gullfalleg (t.d. Ófæri vegur og Dropi í hafi) þar sem söngurinn ræður ríkjum, meðan fáar aðrar (Saga og Elskaðu mig) ná tæplega blindflugi, virðast líða vegna hugmyndaskorts og draga plötuna örlítið niður. Heilt yfir leyna textarnir, fullir af sársauka, á sér og verða betri við hverja hlustun.

Sem sagt: Ljúf og falleg rólyndisplata frá miklu hæfileikafólki. -kg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.