Íslenska pönnukökupannan fær andlitslyftingu 22. apríl 2012 11:00 Viður spilar stórt hlutverk í hönnuninni.
Hönnunarverslunin Kraum hefur í samstarfi við fimm íslenska hönnuði endurhannað skaftið á íslensku pönnukökupönnunni. Nýju pönnurnar hafa selst vel að sögn Höllu Bogadóttur, framkvæmdastjóra Kraums, en þær eru eingöngu seldar í verslun Kraums í Aðalstræti í Reykjavík. Verslun Kraums er staðsett í elsta húsi Reykjavíkur og segir Halla hugmyndina hafa kviknað út frá því. „Okkur langaði að leita í þjóðlegan fróðleik og koma fram með nýja hönnun sem væri þó tengd þjóðinni á einhvern hátt." Sú hugmynd að vinna með nytjahluti kom fljótt upp og hugmyndin um endurhönnun pönnukökupönnunnar var fædd. Hún segir að henni hafi lengi þótt hönnunin á handfanginu ekki nógu góð. „Sérstaklega man ég eftir því að sköftin voru oft brotin og fólk var að vefja tuskum eða einangrunarlímbandi um skaftbrotið."Áhersla lögð á við í skafti Framleiðandi pönnunnar tók vel í hugmynd Kraums og fljótlega hófst undirbúningurinn. Svo skemmtilega vildi til að hópurinn var allur staddur á bókamessunni í Frankfurt og því má segja að vinnan hafi hafist á bökkum árinnar Maine þar í borg. Hópurinn hittist aftur eftir jólin þar sem hönnuðirnir kynntu hugmyndir sínar. Halla segir að áherslan í upphafi hafa snúist um að breyta hlutföllum pönnunnar þannig að skaftið yrði úr viði og fengi meira vægi á móti málminum. Hún segir markmiðið alltaf hafa verið að búa til sérstaka vöru sem væri bara til sölu í verslun Kraums. Salan framar vonumHalla Bogadóttir framkvæmdastjóri Kraums.Að sögn Höllu hafa nýju pönnukökupönnurnar vakið mikla athygli og selst vel. Hönnunarvefurinn coolhunting.com fjallaði um pönnurnar nýlega og salan hefur farið fram úr björtustu vonum. „Það eru fleiri Íslendingar sem hafa keypt pönnurnar hingað til en það gæti breyst með vorinu með fjölgun erlendra ferðamanna," segir Halla. Góðar viðtökur pönnunnar hefur verið hvatning fyrir frekari hönnun á þjóðlegum nytjahlutum. Halla segir að fljótlega hafi hugmyndir kviknað um breytingar á skyldum hlutum. „Ég geri ráð fyrir því að tvær til þrjár nýjar vörur verði settar á markað síðar á árinu. Síðan verður ný vara sett á markað í tengslum við Hönnunarmars á næsta ári. En hver hún er, er leyndarmál á þessu stigi."
HönnunarMars Mest lesið „Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér“ Lífið Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Lífið Meghan snýr aftur á skjáinn Bíó og sjónvarp Missti allan mátt fyrir neðan bringu: Dreymir um að geta spilað golf á ný Lífið Fréttatía vikunnar: Eiður Smári, Harry og frelsissvipting Lífið Bautista hleypur í skarðið Bíó og sjónvarp Þessi hafa safnað mestu fyrir Reykjavíkumaraþonið Lífið Barnastjörnurnar sem Hollywood brást Lífið Lögmaður kærasta Panettiere með yfirlýsingu um andlátið Lífið Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Lífið samstarf Fleiri fréttir Íslenskar systur slá í gegn í módelbransanum „Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Sjá meira