Tíska og hönnun

Kristen Stewart valin best klædda kona Bretlands

Leikkonan Kristen Stewart var nýlega kosin best klædda kona Bretlands.
Leikkonan Kristen Stewart var nýlega kosin best klædda kona Bretlands. Nordicphotos/getty
Tímaritið Glamour Magazine hefur kosið best klæddu konu Bretlands en það er Twilight-stjarnan Kristen Stewart sem trónir á toppnum. Katrín hertogaynja af Cambrigde komst á fjórða sæti listans á meðan litla systir hennar, Pippa Middleton náði ekki nema 47. sætinu.

Stewart þykir líta vel út í hverju sem er og hefur þroskast mikið síðan hún skaust upp á stjörnuhimininn á unglingsárunum. Þrátt fyrir að Twilight-æðinu sé lokið er Stewart heitt nafn í Hollywood. Nýjasta mynd leikkonunnar er Snow White and the Huntsman. Stewart er einnig andlit nýja Balenciaga-ilmsins sem kemur út með haustinu.

Stewart skaut tískufyrirmyndum á borð við Victoriu Beckham og Emmu Watson ref fyrir rass í kosningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.