Múnkhásen boðið til Edinborgar 3. maí 2012 14:00 Ævintýri Múnkhásens Verkið verður líklega sýnt á alþjóðlegri barnaleikritahátíð í Edinborg á næsta ári. „
Þetta er bara lyginni líkast, sem á ákaflega vel við þegar Múnkhásen er annars vegar,“ segir Gunnar Helgason. Hann leikur í sýningunni Ævintýri Múnkhásens í Gaflaraleikhúsinu sem hefur verið boðið á eina stærstu barnaleikhúshátíð heims, The International Children"s Festival, í Edinborg. Hún verður haldin í júní á næsta ári. Virginia Gillard, sem leikur frú Múnkhásen, sendi forsvarsmönnum hátíðarinnar í Edinborg póst um sýninguna og þeir brugðust skjótt við. „Það kom á óvart hvað viðbrögðin voru strax jákvæð því þeir voru ekki búnir að sjá neitt nema smá myndbandsefni sem við sendum þeim,“ segir Gunnar og bætir við að þetta sé mikill heiður fyrir Gaflaraleikhúsið í Hafnarfirði. Ekki er samt öruggt að leikhúsið þekkist boðið. „Þetta er allt á byrjunarreit. Við eigum eftir að skoða öll fjármál og mín reynsla er sú að fagna ekki fyrr en allt er orðið klappað og klárt.“ Þrettán sýningum af Ævintýrum Múnkhásens er lokið og hefur verið nánast fullt á þær allar. Gagnrýnendur hafa einnig hrósað verkinu í hástert. Sýningum verður haldið áfram í maí. „Það eru ekki rosalega margar sýningar eftir og ef fólk hefur áhuga ætti það að skella sér sem fyrst.“ -fb
Menning Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira