Tíska og hönnun

Strigaskór úr roði

Sérhannaðir strigaskór úr erfðabreyttu gaddsköturoði verða brátt fáanlegir á netinu.
Sérhannaðir strigaskór úr erfðabreyttu gaddsköturoði verða brátt fáanlegir á netinu. .nordicphotos/getty
Skóframleiðandinn Rayfish Footwear framleiðir sérhannaða strigaskó úr roði gaddaskötu og kostar parið rúmar 235 þúsund krónur.

Neytendur geta valið um ólíka liti og munstur á skóparið sitt sem unnið er úr erfðabreyttum gaddskötum. Vísindamenn sjá um að rækta sérstök afbrygði af fisktegundinni til að ná fram skærum litum og ólíkum munstrum og hefur það fengið töluverða gagnrýni. Gaddsköturnar eru ræktaðar í Tælandi og er Rayfish Footwear tíu ára gamalt fjölskyldufyrirtæki sem hefur sérhæft sig í hönnun á skófatnaði unnu úr hverskyns fiskroði. Hið erfðabreytta gaddsköturoð er þó nýjung hjá fyrirtækinu og hægt er að velja milli 29 ólíkra munstra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.