Tíska og hönnun

Margiela og H&M

Margareta Van Den Bosch listrænn stjórnandi Hennes & Mauritz mætti í fatnaði frá Maison Martin Margiela.
Margareta Van Den Bosch listrænn stjórnandi Hennes & Mauritz mætti í fatnaði frá Maison Martin Margiela.
Tískuspekingar söfnuðust saman í New York til að berja nýtt hönnunarsamstarf Maison Martin Margiela og sænska verslanarisans Hennes & Mauritz augum. Tískuhúsið framsækna býður upp á endurbætta útgáfu af lykilflíkum sínum gegnum árin í línunni fyrir H&M. Þar er meðal annars að finna skó með gegnsæjum hæl, frakka í yfirstærð og og víðar buxur. Fatalínan er væntanleg í útvaldar verslanir H&M þann 15. nóvember en eflaust verður slegist um flíkurnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.