Umhverfislist og málningadropar í Hafnarhúsinu 19. janúar 2013 10:01 Listaverk eftir Robert Smithson.
Tvær sýningar opna í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi í dag klukkan fjögur. Annars vegar sýning á verkum Roberts Smithsons, eins áhrifamesta myndlistamanns á síðari hluta 20. aldar og hins vegar sýning Ívars Valgarðssonar. Robert Smithson (1938–1973) er þekktastur sem einn af upphafsmönnum umhverfislistar (Land Art Movement). Á þessari sýningu er lögð áhersla á verkið Brotinn hringur/Spíralhæð sem Smithson gerði í Emmen í Hollandi árið 1971. Við sama tækifæri verður opnuð sýningin Til spillis eftir Ívar Valgarðsson (f. 1954). Sýningin samanstendur af þremur veggmyndum af málningardropum sem hafa lekið á gólfið í A-sal í Hafnarhúsinu, auk þriggja ljósmynda. Ívar beinir stafrænum smásjármyndavélum, sem ætlaðar eru til vísindarannsókna, að dropunum og varpar myndum í rauntíma á veggina, eins konar stækkuðum stafrænum málverkum af dropunum. Hann vekur þannig athygli á málningu sem hefur farið til spillis og færir sér í nyt gáleysi málarans, sem málaði veggi sýningarsalarins, með því að færa dropana aftur upp á veggina.
Menning Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira