Bjóða upp á veiðibíla á Norðausturlandi Kristján Hjálmarsson skrifar 15. janúar 2013 08:00 Veiðibílar eru með aðsetur á Norðausturlandi.
Þeir sem ætla í veiði á Norðausturlandi geta stytt ferðatímann til muna með því að fljúga austur og leigja bíl hjá Veiðibílum ehf. Veiðibílar leigja út bíla til veiði meðal annars fyrir Laxá í Aðaldal og Vopnafjörð og er kostnaðurinn um 20 þúsund á dag fyrir hvern bíl. Meðal þeirra sem eru í samstarfi við Veiðibíla er Veiðiþjónustan Strengir ehf. "Mörgum þykir langt að fara austur í Breiðdalsá og Jöklusvæðið og bæði tími og eldsneyti kostar sitt. En það er lausn á þessu vandamáli með því einfaldlega að fljúga til Egilsstaða og taka jeppa á leigu og þar með eru menn komnir í Jöklu á innan við tveim tímum frá Reykjavik, og rúmlega það í Breiðdalinn," segir á vef Strengja. Nánari upplýsingar um Veiðibíla má finna á Facebook.
Stangveiði Mest lesið Norðurá og Hofsá komnar yfir 1.000 laxa Veiði Fjórtán laxa opnun í Norðurá Veiði Veiðin með Gunnari Bender: „Það er búið að vera hundleiðinlegt veður í Reykjavík“ Veiði Frábært opnunarholl í Norðurá Veiði Sá stærsti úr Elliðaánum í sumar Veiði Fyrstu laxarnir mættir í Tungufljótið Veiði Hausthængarnir í Stóru Laxá Veiði Haustveiðin góð í Ytri Rangá Veiði Ennþá ágæt veiði í Veiðivötnum Veiði 6.563 fiskar veiðst í Veiðivötnum Veiði