Tíska og hönnun

Allt annað að sjá hana

Kántrísöngkonan LeAnn Rimes geislaði á viðburði um helgina til að hita upp fyrir Grammy-verðlaunin sem afhent verða í kvöld. LeAnn er greinilega búin að tileinka sér heilbrigðari lífsstíl og lítur stórkostlega út.

Hún hefur verið mikið á milli tannanna á fólki síðustu ár fyrir að vera hættulega horuð. En nú virðist hún vera á batavegi, sem betur fer.

Ekki sjón að sjá greyið LeAnn fyrir stuttu.
LeAnn hefur þurft að standa í ströngu síðustu vikur með eiginmanni sínum Eddie Cibrian. Brandi Glanville, fyrrverandi eiginkona Eddie, hefur ekki sparað stóru orðin um þau LeAnn og Eddie en Eddie hélt framhjá Brandi með LeAnn eins og frægt er orðið.

Í flottu formi núna.
LeAnn og Eddie á Grammy-verðlaununum í fyrra.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.