Tíska og hönnun

Gerðu hjarta heimilisins persónulegra

Sandra Dís Sigurðardóttir og innanhúsarkitekt. skrifa
Fallegt veggfóður, nýtt ljós og skinn á gólfið getur verið byrjuni á góðum breytingum í eldhúsinu þínu.
Fallegt veggfóður, nýtt ljós og skinn á gólfið getur verið byrjuni á góðum breytingum í eldhúsinu þínu.
Í flestum nýjum húsum er mikið lagt upp úr eldhúsinu enda hjarta heimilisins hjá flestum.

Eldhúsin eru einnig orðin stærri og mörg hver opin fram í stofu, enda er ekki skemmtilegt að kokkurinn sé lokaður af inni í eldhúsi á meðan gestirnir bíða frammi.

Ekki vera hrædd við að sýna persónuleika þinn í þessum rými og mála eða setja upp veggfóður í djörfum lit eða eftir því hvernig liggur á þér.

Það getur líka verið skemmtilegt að hafa áberandi hluti í lit inni í eldhúsinu eins og Smeg-ísskápana eða vinsælu Kitchen Aid-vélarnar sem fást í mörgum litum. Það brýtur mjög skemmtilega upp.



Þessi skemmtilegi ísskápur brýtur upp klassíska stemmningu.
Ef eldhúsið er opið má svo finna lausnir með skápum og stórum hurðum til að hægt sér að fela allt eldhúsdótið þegar ekki er verið að nota það.

Fagurbleik Kitchen Aid-vél gerir t.d mikið fyrir lítið rými.
Hér er búið að loka öllu vinnurými með fallegum viðarhurðum.
Einn áberandi litur getur breytt öllu og það er alltaf hægt að breyta.
Hér er ískápurinn í skærgrænum lit.
http://www.sandradis.com/

http://www.facebook.com/dis.honnun






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.