Tíska og hönnun

Vicktoria Beckham er dugnaðarforkur

Victoria Beckham prýðir forsíðu febrúarútgáfu breska Elle og hefur sjaldan litið betur út. Poppstjarnan og fatahönnuðurinn talar um hvernig það sé að vera flutt aftur til Bretlands, en eiginmaður hennar, David Beckham, kláraði samning sinn við fótboltaliðið LA Galaxy fyrir skömmu og gerði nýjan samning við St-Germain í París. Hjónin eru þekkt fyrir að hafa í nógu að snúast, en Victoria er mjög einlæg í viðtalinu og segir að aðalástæðan fyrir vinnuseminni sé sú að þau vilji að börnin þeirra fjögur læri hana af þeim.

,,Ég þarf ekki að vinna, ég verð að gera það. Ég er mjög vinnusöm, David er vinnusamasta manneskja sem ég þekki og ég vil að börnin okkar verði það. Ég trúi því að þú getur náð hvaða markmiði sem er ef þú vinnur nógu hart að þér", segir þessi duglega kona.

Victoria með börnin sín fjögur.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.