Tíska og hönnun

Kjólarnir á Óskarsverðlaunahátíðinni

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Það var mikið um dýrðir þegar Óskarsverðlaunin voru veitt í Dolby leikhúsinu í Los Angeles í gærkvöldi. Þessi viðburður er í hugum margra ekki síður merkilegur í tískuheiminum en í kvikmyndaiðnaðinum, en stjörnurnar eru heldur betur teknar út frá toppi til táar á rauða dreglinum. Í ár varð enginn fyrir vonbrigðum og dregillinn glæsilegri en nokkru fyrr. Hér eru þær dömur sem þóttu skara fram úr í klæðaburði á Óskarnum 2013.

Jessica Chastein var í húðlituðum og hlýralausum kjól frá Giorgio Armani.
Amy Adams var stórglæsileg í lavenderlituðum kjól frá Oscar De La Renta.
Amanda Seyfried í Alexander McQueen.
Naomi Watts í silfurlituðum pallíettukjól frá Giorgio Armani sem fór henni einstaklega vel.
Halle Berry í kjól sem Donatella Versace gerði sérstaklega fyrir tilefnið í James Bond stíl.
Catherine Zeta Jones var guðja í gylltum kjól frá Zuhair Murad.
Jennifer Garner í vínrauðum kjól úr smiðju Gucci Première.
Reese Witherspoon í dásamlegum dimmbláum kjól frá Louis Vuitton.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.