Haraldur Nelson: Svo stoltir að við erum pínu montnir Oddur Þorsteinsson skrifar 23. febrúar 2013 08:00 Árni Ísaksson.
Eins og alþjóð veit sigraði Gunnar Nelson andstæðing sinn í blönduðum bardagalistum (MMA) um síðustu helgi, en færri vita að Árni Ísaksson ver veltivigtartitil sinn hjá Cage Contender bardagakeðjunni gegn Ali Arish í kvöld. Árni er þó ekki eini Íslendingurinn sem keppir í kvöld, því Bjarki Þór Pálsson mun keppa í öðrum áhugamannabardaga sínum fyrr um kvöldið á sama viðburði. Fréttablaðið sló á þráðinn til Haralds Dean Nelson, umboðsmanns Árna, Bjarka og Gunnars, sem er með þeim á Írlandi og hefur tekið þátt í undirbúningnum fyrir bardagana. „Vikan á Írlandi hefur gengið mjög vel. Ég og Gunni komum á mánudag eftir bardagann í London og Árni og Bjarki komu hingað á þriðjudag. Menn hafa bara verið rólegir og ekki verið að æfa af neinni hörku, heldur bara til að halda blóðinu á hreyfingu." Haraldur segist hlakka til að koma heim. „Þetta er þó búið að vera svolítið löng utanlandsferð og maður hlakka til að koma heim á konudaginn og kyssa konuna."Lítið mál að ná réttri þyngd Aðalprófraun föstudagsins var hvort Árni og Bjarki væru í réttri þyngd fyrir sinn þyngdarflokk. „Það var lítið mál fyrir Árna og Bjarka að ná réttri þyngd. Árni var nokkur hundruð grömm yfir þyngd í morgun, en fór bara í heitt bað til að laga það. Bjarki var hins vegar í réttri þyngd þegar hann vaknaði í morgun. Þeir fóru í forvigtun áðan og voru undir mörkunum og það á ekki eftir að breytast fyrir formlegu vigtunina á eftir. Núna eru menn bara að drekka vatn og kókoshnetuvatn til að fá vökva aftur í líkamann. Það er ráðlegt að láta smá tíma líða eftir vigtun áður en menn fara og fá sér að borða." Undirbúningnum er svo að segja lokið og fátt annað eftir en að berjast. „Það er ekki mikið á dagskránni fram að bardaganum. Formlega vigtunin fer fram á eftir, svo taka menn því bara rólega. Fyrir bardagann á morgun fara Árni og Bjarki svo í læknisskoðun til að ganga úr skugga um að þeir séu í ástandi til að fara í búrið og eftir bardagann verður síðan önnur læknisskoðun, til að tryggja að menn séu í lagi. Þess fyrir utan þurfa þeir að fara í viðtöl. Það eru þó nokkrir blaðamenn komnir til að fylgjast með þessum viðburði, bæði innlendir og erlendir, enda er áhuginn fyrir þessari íþrótt sívaxandi." Það má búast við að Árni þurfi að fara í mörg viðtöl, enda er hann meistarinn og að fara að verja titilinn sinn."Þetta er þó ekkert í líkingu við fjölmiðlasirkúsinn í kringum UFC í síðustu viku," segir Haraldur.Margt hættulegra Það getur verið stressandi að vita að maður sé að fara að berjast, en Haraldur segir að það sé ekki vandamál. „Þetta er íþrótt og þeim fylgir alltaf stress, en fyrst og fremst hlakkar okkur til að sjá hvernig Bjarki og Árni standa sig. Þeir hlakka líka til, þó það sé pínu fiðringur í þeim. Þetta eru auðvitað bardagalistir og þetta getur verið harður slagur, en menn eru búnir að fara í gegnum mikla þjálfun og og það eru ýmis öryggisatriði til staðar til að vernda heilsu þeirra. Slysahættan í þessu er líka mun minni en í mörgum öðrum íþróttum serm við tengjum ekki endilega við meiðsli, eins og t.d. mótorsport."Spádómar Haraldur vill ekki spá mjög ítarlega um útkomu bardaganna, en er sannfærður um sigur okkar manna. „Ég held að Bjarki muni sigra hinn ósigraða andstæðing sinn, taka hann niður og vinna hann í gólfinu með uppgjafartaki," segir Haraldur. Um andstæðingar Árna segir hann: „Arish er mjög sterkur, mjög góður glímumaður og höggþungur. Ég hef séð hann rota menn. Þetta gæti því orðið erfiður bardagi, en það slær enginn Árna út af laginu. Ég held að Árni muni taka hann í gólfið og sigra hann með tæknilegu rothöggi með því að lenda nógu mörgum ósvöruðum höggum á hann í gólfinu. Það er þó aldrei hægt að spá mjög ítarlega, þetta er MMA-bardagi og það getur allt gerst. Þetta verður skemmtilegt, spennandi og flott."Stoltið jaðrar við mont Haraldur vill þakka stuðninginn frá Íslandi og segir að hljóðið í mönnum sé mjög gott. „Við erum bara mjög jákvæðir og hlökkum líka til að koma heim og halda áfram að vinna í Mjölni. Við erum ofboðslega þakklátir fyrir allan stuðninginn og hamingjuóskirnar frá Íslandi, sem rignir ekki bara yfir Gunnar Nelson, heldur líka alla í kringum hann, fjölskylduna líka." Árni fær líka síaukna athygli, enda hefur hann náð mjög góðum árangri í íþróttinni. „Það er líka gríðarlegur stuðningur við Árna og við sjáum greinilega hvað sportið hefur vaxið svakalega. Við höfum auðvitað lagt mikinn metnað í uppbyggingu Mjölnis og reynt að hafa þetta fagmannlegt, öruggt og heimilislegt. Þar hefur mikið starf verið unnið. Við erum nokkuð stoltir með hvernig þetta hefur gengið og eiginlega bara orðnir pínu montnir líka. Þetta byggist þó auðvitað líka á því að við höfum öflugt bakland heima fyrir. Það er byr í seglum manna." Bardagi Árna verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og stefnt er á að sýna bardagi Bjarka í sömu útsendingu.
Innlendar Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga Sigurganga Hauka heldur áfram Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Áhugaverð ummæli Teits hafa hrist upp í hlutunum Verður líkamleg og andleg barátta Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Tímabilinu lokið hjá Viktori Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu Finnar neita að spila við Rússland á HM Haukur um slæma stöðu Löwen: „Góður tími til að snúa þessu við“ LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Líkir Dallas Cowboys við ræningjana tvo í Home Alone Sjá meira