Tíska og hönnun

Gucci reið á vaðið

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Tískuvikurnar halda áfram og nú er röðin komin að Mílanó, en tískuhátiðin mikla hófst þar í gær. Tískuhús Gucci reið á vaðið og sýndi línu fyrir komandi haust – og vetur við góðar undirtektir. Línan var mjög í anda Gucci, dimmir klæðilegir litir, falleg og dömuleg form. Frida Giannini, yfirhönnuði þar á bæ, tókst að hafa línuna dramatíska en á sama tíma töffaralega og blandaði saman fögrum efnum eins og fjörðum, silki, leðri og ull. Útkoman varð einstaklega falleg.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.