Tíska og hönnun

TREND – Gegnsæjar töskur

Gegnsæ plastefni hafa smám saman verði að ryðja sér rúms síðustu ár. Þessi framúrstefnulegi tískustraumur sem skilur lítið eftir fyrir ímyndunaraflið er vinsæll í töskutískunni þessa dagana. Margir af helstu tískumógúlum heims hafa sést með gegnsæjar töskur upp á síðkastið ásamt því sem nokkrir af frægustu hönnuðum heims notuðust við þær á vor-og sumarsýningum sínum. Hér eru nokkrar vel klæddar dömur með gegnsæjar handtöskur.

Solange Knowles er alltaf flott. Hér er hún með handtösku úr pasti.
Bella Thorne fór á Nickelodeon Kid's Choice Awards með gengsæja og neonlitaða tösku.
Hér sjáum við betri mynd af töskunni.
Mad Men stjarnan Elizabeth Moss á frumsýningu.
Holliday Grainger á rauða dreglinum.
Frá vor- og sumarlínu Simone Rocha.
Nærmynd af tösku Elizabethar, sem virðist vera tóm.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.