Tíska og hönnun

Leit hafin að fyrirsætum fyrir hársýningu helgarinnar

Ellý Ármanns skrifar
Hársýning TIGI fer fram 12. maí í Austurbæjarbíói þar sem kennt veður það heitasta í hárlitun, klippingum og hárgreiðslum og allt það nýjasta frá London og New York Fashion Week af hárteymi Anthony Mascolo sem er einn Mascolo bræðranna sem stofnuðu Toni & Guy á sínum tíma en hann er einn af fremstu hármeisturum heimsins. Nú stendur yfir leit að fyrirsætum fyrir helgina en við heyrðum stuttlega í Margréti Björnsdóttur hjá módelskrifstofu Elite á Íslandi sem vinnur í því að ráða fyrirsætur fyrir þessa stóru sýningu.

Sigurlaug er ein af fyrirsætunum sem voru valdar á hársýningu TIGI sem fram fer í Austurbæ 12. maí.
Prufur í kvöld

„Í kvöld eru prufur á Hótel Hilton Reykjavík Nordica og fyrirsætur frá Elite hafa verið boðaðar í það. Í þessu prufunum er verið að leita eftir fyrirsætum til að klippa, lita og greiða vegna hársýningar TIGI," segir Margrét.

Elite sigurvegarinn mætir á svæðið 

„Ein af fyrirsætum Elite sem verða í hársýningu TIGI er Sigurlaug Birna Guðmundsdóttir en hún vann Elite Model Look 2012 hérlendis sem er ein stærsta fyrirsætuleit heims og fór hún áfram í lokakeppnina sem haldin var í Shanghai í desember síðastliðnum þar sem stelpur frá yfir 70 löndum kepptu til sigurs. Það er mikill heiður fyrir Elite að fá að vinna með meisturum hárteymis TIGI."



Þessi er heimsfrægur í hárbransanum.
Íslensk náttúra - íslensk fegurð

Við spurðum einnig markaðsstjóra TIGI, Mögnu Huld Sigurbjörnsdóttur, stuttlega um undirbúninginn fyrir sýninguna: „Þeir nota fyrirsætur frá Eskimo og Elite en þemað í nýrri línu hjá þeim kallast HairReBorn. Það verður spennandi að sjá og upplifa hvernig þeir ætla að nota íslenska fegurð og íslenska náttúru í nýju línunni hjá sér. Ég hvet alla til að mæta í Austurbæ á sunnudaginn," segir Magna.

Hér má kaupa miða á sýninguna (midi.is).







Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.